Eimreiðin - 01.04.1932, Side 114
234
RADDIR
eimreiðin
Hr. Laxness Iætur þess getið með talsverðum rembingi, að hann hafi
kynst þessum hitlersku „Ivgavísindum", er hann nefnir svo, líklegast löngu
áður en ég hafi heyrt þau nefnd. Ef hann á þar við kenninguna um yf'r"
burði norræna kynsins (í vissar áttir), þá get ég fullvissað hann um það>
að ég þekti þá kenningu þegar í skóla (þó ekki frá hr. Hitler, sem
enginn hafði þá heyrt nefndan) — á meðan hr. Laxness var enn óvit'
eða því sem næst.
Hr. H. K. Laxness segir, að það sé eftirtektarvert, að „kenning þess>
er af mestri aiúð fram borin af mönnum í þýzka ríkinu, sem sjálfir eru
af slafneskri eða rómanskri tegund, eins og t. d. Hitler sjálfur
kemur fáfræði H. K. Laxness greinilega í Ijós. Það er ekki til neinn
sérstaklega slafneskur, rómanskur eða germanskur mannflokkur (þn*1
norræna kynið hafi stundum verið rangnefnt „germanskt"), heldur slaf'
neskar, rómanskar og germanskar þjóðir (og mál), en þjóðir og mann-
flokkar eru sitt hvað. En annars þarf hr. H. K. Laxness ekki að
sér að telja mönnum trú um, að þeir menn aðhyllist helzt norr*nU
hreyfinguna, sem ónorrænastir séu að útliti, ef það er það, sem hann á
við. Og þó að útlit mitt komi eiginlega ekki þessu máli við, þá verð eg
að segja það, úr því að hr. Laxness hefur dregið það inn í umríeð'
urnar, (er hann segir, að ég sé „hér um bil eins ógermönsk manntegund,
og hægt er að hugsa sér"), — að annað hvort man hr. Laxness ekku
hvernig ég lít út, eða hann veit ekki, hver eru sérkenni „norraena
kynsins, sem ég býst við að hann meini, er hann talar um „germanska
manntegund". Annars er þetta aðeins vandræðafálm hjá hr. Laxness og
sýnir glögt rökþrot hans.
Þá segir hr. H. K. Laxness, að ekki séu minstu „líkindi til, að h*S'
sé að sanna yfirburði „Germanentums" um fram aðra kynflokka", heldur
gangi „öll hrein kynflokkavísindi í þá átt, að sanna hið gagnstæða".
segir hann rétt á eftir, að „enginn sérstakur mannflokkur virðist hafa
»yfirburði« um fram aðra“. Hér rekur eitt sig á annars horn hjá hr. Lax
ness og slangar hvað annað. Einkennilegast er þó, að hr. Laxness skuh
halda því fram, að (allir) aðrir mannflokkar hafi yfirburði um fra^
„Germanentum", og virðist svo, sem hér sé risinn upp „öfugur Hitlef >
þar sem hr. H. K. Laxness er. En mér dettur í hug, svona eftir á, a
hr. Laxness eigi ef til vill ekki við það, að allir aðrir mannflokkar haf'
yfirburði um fram norræna kynið, heldur komist hann e. t. v. bara svona
klaufalega að orði.
Það er nú svo, að þótt ekki sé hægt að finna neinn mælikvarða 3
gildi mannflokkanna alment, þar eð hver þeirra hefur sína fyrirmynd,
sitt „ideal" mannlegs fullkomleika, skapað í sinni mynd og líkingu, "
þá getur komið til greina mat á gildi kynflokkanna fyrir einhverja vissa
menningu. Það er auðsætt, að Norðurálfumenn, af hvaða norðurálfukyn
inu sem er, geta ekki haldið uppi kínverskri menningu og þróað hana
sama anda og Kínverjar sjálfir hafa gert og geta gert; norðurálfukynin eru
því ekki æskileg fyrir kínverska menningu, menningu í kínverskum anda,