Eimreiðin - 01.04.1939, Side 51
EIMREIÐIN
MESTI RITDÓMARI NORÐURLANDA
163
fimi.' Sérstaka hæfileika hefur hann til að finna gull í jörðu
almúgans, og á þann hátt sannar hann mörgum sinnum menn-
mgargildi alþýðuskáldanna. í þeim efnum er hann andstæður
Georg Brandes, sem aðeins viðurkendi ofurmennin og afneit-
aði þeirri hlið veruleikans, sem er ósýnileg, hinni einföldu
listarþrá, sem hefur rót í gömlum trúarbrögðum. En menning-
ln á, eins og fyr er sagt, fyrst og fremst rót í dalnum, en ekki
a fjallstindinum. Bukdahl neitar því ekki, að utanaðlærðar
kennisetningar séu gagnslaus hleypidómur, en hann sér sam-
timis, að lifandi sannfæringarþróttur er ekkert sérstakt fyrir-
bl-igði hjá miklum mönnum og engin sérgrein fyrir einstakar
stefnur. Þegar maður vill tjóðra lífið og möguleika þess á einn
emasta bás, þá verður gildi röksemdanna aðeins glapsýni.
Verk Bukdahls hafa verið mikið umrædd víðsvegar um
heim, en þó mest á Norðurlöndum, því þar þykjast margir
ferir um að gagnrýna bókmentir sínar engu siður en hann.
^afa bæði kennimenn og kreddusmiðir gripið til pennans,
annaðhvort af aðdáun og ræktarsemi við starf höfundarins
eða af þvi, að þeir vildu túlka aðrar heimildir og aðrar skoð-
anir. Þannig er það með öll merk rit. Þau verða oft að deilu-
efni einsýnna manna, sem halda, að þeir hafi einkarétt á trú-
b°ði lífsins.
En hvað sem um rit hans hefur verið sagt, þá eru þó flestir
sammála um hans glöggu yfirsýn og djarfa anda. Það er engum
vafa bundið, að verk hans eru einhver hin verðmætustu rit,
Sena finnast um síðari tírna bókmentir Norðurlanda. Áhrifanna
af starfi hans gætir alstaðar, bæði við lága og háa skóla. I hinni
nyju dönsku bókmentasögu eftir prófessor Ejnar Thomsen
(Eansk Litteratur efter 1870) er til dæmis hvívetna vitnað í
Verk Bukdahls. Hið sama gildir mörg norsk bókmentarit. Og
enginn efast um, að verk hans um Svíþjóð, „Svensk National-
kunst“, og „Det unge Sverige“, sem hann hefur ekki lokið við
ennþá, muni einnig verða þýðingarmikil rit, þar sem mikil-
Væg viðfangsefni verða leyst af viðsýnum anda og frjálsbornum
sannf æringarþró tti.
Hvort Island kemur með í bókmentayfirlit hans er ennþá
óvist. Hann hefur ekki að sinni ákveðið að rita um meira en
Norveg, Danmörku og Svíþjóð. En Bukdahl er ennþá ungur,