Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Síða 84

Eimreiðin - 01.04.1954, Síða 84
Símon Jóh. Ágústsson: LIST OG FEGURÐ. Rvík 1951 (HlaÓbúS). Það er gríðarlega erfitt að skil- greina og lýsa með orðum þvi, sem á voru máli heitir list og fegurS. Viðhorf manna til þessara hluta er svo misjafnt. Einhver hópur manna, málsmetandi, tekur upp á þvi að segja, að viss tjáning, til dæmis málverka, músíkur eða skáldskapar, sé list. Niu- tiu af hundraði venjulegra manna botnar hvorki upp né niður i þessari „list“, en samt er það list, af þvi að hópur manna sér eða heyrir i þvi list. Eins er það með fegurð. Gamalt máltæki segir, að hverjum þyki sinn fugl fagur. öðrum þykir sá fugl kannske ljótur. Oft er það komið undir sálarlífi fólks, hvað þvi þykir fagurt og hvað ljótt. Einum þykir öræfasvæði og jöklar, gróðurlausir sandar og auðnir, grjótfell og hrika- legir hamrar fagurt. Aðrir vilja forð- ast þetta sem mest, en kjósa grösugar sveitir og gróðursælar og sjá þar náttúrufegurð við sitt hæfi. Þetta get- ur jafnvel verið tízkuatriði. Fyrir 70 —80 árum þótti flestum Þingvellir ljótir, eftir þvi sem mér var sagt. Nú er öldin önnur. Stundum þykja feitar konur fegurstar. Á öðrum timum eiga þær helzt að vera sem magrastar. Allir kannast við þetta. Stundum er mtiðins, að karlmenn gangi með skegg (a. m. k. yfirskegg) o. s. frv. Fegurð verður því illa ákveðin með visind- um. Hún er allt of margbreytileg og hverful. En samt er ekki ófróðlegt að at- huga þetta mál. Prófessor Simon Jóh. Ágústsson hefur gert það rækilega 1 þessari bók, sem er 152 bls., þétt prentuð. — Auðvitað er fróðlegt að lesa það, sem þessi hálærði heini- spekingur segir um þessi mál. Hann hefur sinn lærdóm frá öðrum að miklu leyti, en kemur svo með sinar skarplegu athugasemdir og athugan- ir, vitnar til dæmis oft i islenzk skáld, svo sem Einar Bendiktsson, Matthías o. fl. — Skýring sálkönnuða um, of hverju menn taki upp dulnefni, er skökk, að minnsta kosti um suma. Ástæðan er oftast sú, að menn eru hlédrægir og vilja sjá, hvernig skáld- skapnum er tekið, áður en þeir láta aðra vita, að þeir séu að fást við slíkt föndur, en alls ekki hin svo- nefnda „ödipusduld" (þ. e. að af- neita ætt sinni). Lafontaine segir: „Le bien est rarement camarade du beau.“ Þetta er, að mínu áliti, ekki rétt, heldur slagorð, sem ekki á gildi að vel athuguðu máli. Hið góða er nefm- lega œtíð fagurt, og engin fegurð er í raun og veru til nema hún sé jafn- framt góð. Sumir nota orðið „æg1' fegurð", til dæmis um eldgos, jökul- hlaup og slíkt. Sé hér um stórskaða að ræða, er fyrirbrigðið ekki fagurt, heldur átakanlegt og sorglegt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.