Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Qupperneq 34
SAMSTARF HEIMILA OG FRAMHALDSSKÓLA
Foreldrar og kennarar eru líka mjög hlynntir upplýsingagjöf og hafa þessir að-
ilar í raun svipaða skoðun á því og nemendur hvaða upplýsingum sé mikilvægast
að miðla til foreldra (sjá Töflu 4). Meirihluti foreldra telur að foreldrafélög henti vel
í samstarfi en þegar spurt var um vilja til þátttöku var rúmur helmingur (52%)
foreldra ekki tilbúinn til að taka þátt í starfi foreldrafélags. Ur niðurstöðunum má
sjá að þeir kennarar sem svara vilja auka samstarf og bæta upplýsingamiðlun til
foreldra. Af svörum um viðhorf til ólíkra leiða samstarfs má leiða að því líkur að
þessir sömu kennarar séu samt ekki tilbúnir að leggja á sig aukna vinnu til að bæta
samstarfið. Þeir velja samskiptaleiðir sem ekki eru beint á þeirra vegum, til dæmis
kynningarbæklinga, fréttabréf og haustfundi, en eru minna hlynntir leiðum eins og
að hringja heim, boða foreldra í viðtöl og fá aðstoð foreldra við kennslu. Svarendur
voru einnig beðnir um að taka afstöðu til nokkurra fullyrðinga er tengjast upplýs-
ingamiðlun til heimila og styðja þær niðurstöður enn frekar að allir aðilar séu
hlynntir góðri upplýsingamiðlun. Fyrsta fullyrðingin hljóðar svo: Það er mikilvægt að
skólinn látiforeldra vita efbarnið mætir illa í skólann. Niðurstaðan er mjög afgerandi en
rúmlega 73% nemenda eru sammála eða mjög sammála þessari fullyrðingu, rúm-
lega 99% foreldra og um 92% kennara. Svör við fullyrðingunni Það er mikilvægt að
skólinn láti foreldra vita ef barnið sýnir ekki fullnægjandi námsárangur eru einnig afger-
andi. Rúmlega 68% nemenda eru sammála eða mjög sammála, 99,5% foreldra og
92% kennara. Einnig var sett fram fullyrðingin Foreldrar eiga rétt á að fá upplýsingar
um skólasókn og einkunnir barna sinna í framhaldsskóla öll skólaárin. Meðal nemenda
eru rúmlega 65% sammála eða mjög sammála fullyrðingunni, tæplega 96% foreldra
og 84% kennara. Síðasta fullyrðingin þessu tengd er Það þarf að bjóða upp á regluleg
viðtöl við umsjónarkennara fyrir foreldra og nemendur. Niðurstöðurnar eru að rúmlega
60% nemenda eru sammála eða mjög sammála fullyrðingunni, tæplega 83% for-
eldra og rúmlega 68% kennara.
UMRÆÐA
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru í fyrsta lagi að samstarf heimila og fram-
haldsskóla landsins er frekar takmarkað, en þó hefur um helmingur skólanna tölu-
vert samstarf við heimili nemenda og er það hærra hlutfall en búast mátti við. í öðru
lagi eru helstu niðurstöður þær að nemendur, foreldrar og kennarar telja mikilvægt
að auka samstarf heimila og framhaldsskóla. Sú vitneskja var ekki fyrir hendi áður
og þann tíma sem unnið var við þessa rannsókn var því oft slegið fram af skólafólki
að það væri ekki hægt að efla samstarf heimila og framhaldsskóla vegna þess að
nemendur vildu það ekki, auk þess sem foreldrar og kennarar hefðu hvorki tíma né
áhuga á að sinna því. Ekki gátu viðkomandi aðilar lagt fram gögn máli sínu til
stuðnings heldur byggðist þetta mat á tilfinningu þeirra. Rannsókn þessi sýnir hins
vegar að slíkt mat á líklegast ekki við rök að styðjast þar sem meirihluti nemenda í
þeim sex framhaldsskólum sem rannsóknin náði til lýsti yfir vilja til að auka upplýs-
ingaflæði og samstarf milli heimila og skóla auk þess sem mikill meirihluti foreldra í
úrtakinu taldi brýnt að auka samstarfið. Önnur áhugaverð niðurstaða er að nemend-
32