Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 43

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 43
ÞORSTEINN HELGASON eða í stórum dráttum. Aðferðir og leiðir má fella beint inn í markmiðslýsingar, víkja að þeim í inngangi eða sleppa að nefna slíka hluti. Þjóðarsöguna er hægt að rekja í tímaröð eina sér eða setja sögu umheimsins fram samhliða með henni. Hvort- tveggja má einnig taka fyrir í efnisþáttum eða velja sérstök tímabil til sérstakrar umfjöllunar. Ef svipast er um í sögunámskrám þessa dagana er lagið með ólíkum hætti. Fáein dæmi skulu nefnd hér í upphafi. - Franskar sögunámskrár í framhaldsskólum hafa ekki vikið frá þeirri líf- seigu hefð að tilgreina nákvæmlega hvaða efnisatriði skuli taka fyrir og jafnvel að úthluta klukkustundum fyrir hvern efnisþátt, segja hvaða landakort skuli nota og hvaða myndir séu skoðunarverðar. Um aðferðir er hins vegar fátt eitt sagt (Histoire-géographie 1998). - Dönsk aðalnámskrá fyrir grunnskóla er stuttorð um þessar mundir, tilgreinir rýmissviðin (sögu Danmerkur, Norðurlanda, Evrópu og heims- ins), efniseigindir (félagssvið, kynjasjónarhorn, stjórnmál, trú, mannrétt- indi, efnahagsmál, einstaklinga, menningu); enn fremur nokkra aðferða- þætti: að greina, afla upplýsinga, beita hugtökum, fylgja sögulegum mál- efnum eftir, rökræða, skapa, túlka og tjá, meta (Formál og centrale kund- skabs- og færdighedsomráder. Folkeskolens fag 1995). - I Finnlandi var horfið frá ítarlegri efnislýsingu í námskrá í sögu fyrir framhaldsskóla og í staðinn sett fram stutt hugleiðing um meginstefnu, efnissvið og aðferðir - eins og rakið verður hér á eftir. Menn hafa reynt að greina einhverja meginþróun og tilhneigingar í sögunámskrám og tengt þá þróun við sveiflur í stjórnmálum (Ahonen 1997). Víst er að æskuóróinn, sem kenndur er við '68, hafði sín áhrif, sömuleiðis nýfrjálshyggjan á níunda ára- tugnum, fall sovétkerfisins og sitthvað fleira. Tilraunastarfsemi, frjálsræði skóla og kennara, þemavinna, áhersla á aðferðir og gagnrýna hugsun - allt hefur þetta verið tengt við vinstrihyggju í stjórnmálum. Samfelld þjóðarsaga í tímaröð, staðreynda- nám, áhersla á einstaklinga í sögunni, utanbókarlærdómur, miðstýrðar námskrár - þetta ættu hins vegar að vera kennimerki hægri stefnu. En þetta eru einfaldanir og beinlínis rangfærslur oft á tíðum þó að stefnur hafi á köflum fengið á sig pólitískan lit. Engar námskrár mæla með gagnrýnislausum þululærdómi og enginn hvetur til uppblásinnar þjóðernishyggju. Og þó að pendúllinn sveiflist og tekist sé á er aldrei farið í samt far aftur. Stefnur taka lit af andstæðum sínum og málum er miðlað. BANDARÍKIN Árið 1994 birtust á prenti drög að eins konar landsnámskrá (eða öllu heldur við- miðum) fyrir sögukennslu í grunn- og framhaldsskólum Bandaríkjanna, „National Standards for United States/World History".2 Þetta voru allnokkur tíðindi, ekki 2 Um þetta mál hefur geysimikið verið skrifað. Hér er einkum stuðst við Nash, Crabtree og Dunn 1998, Journn! of Social History 1995, Nolte 1997, vefsíður út frá National Center for History in the Schools, vefsíður út frá History Standards og Clair 1997. 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.