Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 78

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 78
ANIMUS O G SKUGGI HELGU KARLSDÓTTUR Þá mun mál aðfela sig - þófyr væri - verði jeg aðgrárri gimbur við jötu mín. Fyrstu hamskiptin sem felast í því að breyta sér í gráa gimbur sýnir hæfni Helgu til að villa um fyrir risunum og snúa þannig á þá í fyrsta sinn. Lamb er tákn sakleysis, hreinleika og auðmýktar og gagnvart sakleysi lambsins standa jafnvel tröll ráð- þrota. í kristinni trú er lambið tákn Jesú Krists sem aftur táknar heildina (Cooper 1993:125-126). Gimbrin gráa stendur fyrir barnslegan, einlægan þátt í dulvitund Helgu sem hún leitar til í viðureigninni við hina ógnvænlegu risa. Grátt er litur huliðsheima (Einar Ól. Sveinsson 1940:289) sem undirstrikar að gimbrin góða er ættuð úr huliðsheimum mannsins eða dulvitundinni. Eftir að risarnir hafa ruðst í halarófu skríðandi á fjórum fótum inn göngin hjá Helgu leita þeir hennar um allan bæinn án árangurs. „Hvar er stelpan?" sögðu þeir - og skildu ekki neitt í neinu. - Þegar þeir sáu gráu gimbrina standa við jötu inn við taðstál, þukluðu þeir um bakið á henni og sögðu: „Ansi er þettafallegt lamb", en Ijetu kyrt, - og hurfu frá við svo búið. Risarnir þukla lambið af kunnáttu bóndans. Þegar þeir eru farnir bætir Helga á eldinn og skíðlogar hjá henni. En risarnir eru ekki komnir nema hálfa leið heim þegar einum þeirra dettur í hug hvort gráa gimbrin hafi ekki verið stelpan og hefur orð á því. Hinir risarnir taka undir það og snúa þeir nú við. Gullintanna varar Helgu að nýju við með því að gelta og upplýsa hana um að gýgur sé enn kominn að garði og Helga svarar: „Þá er mál aðfela sig, þófyrr væri, - verði jeg að trafakefli undir höfði mjer." Trafakefli er áhald sem notað var til að slétta nýþvegin tröf. Trafakeflin voru alltaf tvö saman; undirkeflið var sívalningur sem tröfin voru undin upp á, en með yfir- keflinu sem var slétt að neðan var undirkeflinu velt fram og aftur á sléttu borði þangað til tröfin voru orðin slétt. Menn gáfu oft heitkonum sínum trafakefli í tryggðapant enda var oft vel til þeirra vandað með miklum útskurði. Trafakefli er allt annars konar tákn en gimbrin. Gimbrin stendur fyrir eitthvað saklaust og jafnvel barnslegt en trafakeflið gefur aftur á móti vísbendingu um störf og atferli kynþroska fólks. Sem tryggðapantur gefa keflin fyrirheit um sameiningu karls og konu eða hins kvenlega og hins karllega. Um leið og keflið vísar í höfuð- búning fullvaxta konu eða skautfaldinn og tengist þannig því kvenlega er form þess karllegt, fallusartákn, í þessu tilfelli tákn animusar í Helgu. Animus er konunni nauðsynlegur til að hún geti hrint hugmyndum sínum í framkvæmd, sýnt kjark og hlutlægni og andlega visku (von Franz 1990b:194). Jafn- framt tengist sannfæring eða skoðanamyndun animusi og Jung hélt því fram að á bak við animus stæði fornmyndin merking eða tilgangur (Jung 1971:32). Með tákni trafakeflisins er sýnt að Helga hefur tekið út mikinn þroska og að henni hefur tekist að innlima animus að hluta til. Sá þáttur animusar sem hún hefur enn ekki tekist á við og er áfram ógnvænlegur lætur á ný á sér kræla í risunum. Þeir halda í þriðja sinn heim að koti Helgu þegar einum þeirra dettur í hug hvort stelpan hafi ekki falið sig í trafakeflinu. Enn einu sinni geltir Gullintanna og varar Helgu við, en hún svarar: „Þá mun mál aðfela sig, þófyr væri, - verði jeg að stjörnu uppi á himni." Eftir að risarnir hafa leitað dyrum og dyngjum að trafakeflinu sneypast þeir út. 76
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.