Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 103

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 103
ÞORSTEINN P. GÚSTAFSSON STARFSNÁM f FRAMHALDSSKÓLANUM í þessari grein verða leidd rök að því að starfsnám eigi ekki heima á framhalds- skólastiginu eins og nú tíðkast. Skýrsla nefndar um mótun menntastefnu, átján manna nefndarinnar svokölluðu, verður lögð til grundvallar, en skýrslan var gefin út í júní 1994 (sjá Nefnd um mótun menntastefnu 1994). Einvörðungu verður rætt um þann hluta hennar sem fjallar um starfsnám eða bls. 66-82. Þar leggur nefndin fram tillögur um gagngera endurskipulagningu starfsnáms á framhaldsskólastigi. Ekki verða færð fram mótrök gegn áliti nefndarinnar lið fyrir lið. Umfjöllunin er almenns eðlis og varðar frekar þá stefnumótun sem fram kemur í þessum hluta skýrslu nefndarinnar. SÖGULEGT YFIRLIT Iðnnám, starfsnám eða verknám á sér ekki langa sögu hér á landi. Fyrsta starfs- menntanám, sem hér er skipulagt sem skólanám, hefst á síðari hluta nítjándu aldar með fræðslu í ýmsum greinum eins og með búnaðarfræði, húsmæðrafræði, kenn- arafræðum, skipstjórnarfræðslu og með fræðslu í ýmsum greinum iðnaðar. Þessir skólar, sem stofnaðir voru á árabilinu 1875 til 1910, störfuðu með blóma langt fram yfir miðja þessa öld sem sérskólar. Með fræðslulögunum 1946 er í fyrsta sinn sam- tvinnað starfsnám og bóknám undir sama þaki, þ.e. á gagnfræðastiginu átti bæði að kenna verkmennt og bókmennt. Með tilkomu fjölbrautaskóla, hins sameinaða fram- haldsskóla, um 1970 var enn frekar stefnt að samþættingu verknáms og bóknáms. í framhaldsskólalögunum frá 1988 er ítrekað að auka eigi veg styttri verknámsbrauta en jafnframt er forræði yfir iðnnámi fært til menntamálaráðuneytis. Við það rofn- uðu mikilvæg tengsl iðnnáms við faggreinarnar, iðnsveinafélögin og iðnmeistar- ana. Segja má að þrátt fyrir starfsmenntakennslu í rúma öld sé ekki nein viðlíka hefð fyrir þessari menntun eins og víðast annars staðar í Vestur-Evrópu þar sem rekja má hefðir ýmissa starfsstétta eða gilda allt til miðalda. Að vísu varð til nokkuð öflug iðnaðarmannastétt sem hélt uppi iðnfræðslu á fyrri hluta þessarar aldar og allt fram á sjöunda áratuginn. Þegar losnaði um tengsl þessara iðngreina við verk- menntunina samfara áðumefndri breytingu á forræði iðnnámsins þvarr fræðslu- og menntahefð þessara stétta. Því má segja að það sem kallast menningarlegur höfuð- stóll iðnmenntunar og iðnmenntaðra stétta hafi rýrnað upp frá því hér á landi (Gestur Guðmundsson 1998). Hið kyrrstæða bændasamfélag lifði inn í sig í sjálfs- þurftarbúskap þar sem vinnubrögð fluttust fumlaust milli kynslóða við dagleg störf stórfjölskyldunnar og lítil þörf var á fagmenntun. Helzta bylting í atvinnuháttum varð rétt fyrir síðustu aldamót með útgerð þilskipa og síðan togara og vélbáta. Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla fslands 7. árg. 1998 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.