Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Blaðsíða 5
t
JÓNAS THORODDSEN
Jónas Thoroddsen fyrrum borgar- og bæjar-
fógeti andaðist á sjúkrahúsi hér í borg 11. nóv-
ember 1982 tæpra 74 ára að aldri. Hann var
fæddur í Reykjavík 18. nóvember 1908 sonur
hjónanna Sigurðar Thoroddsen verkfræðings,
yfirkennara við Menntaskólann, og Maríu Krist-
inar f. Claessen. Ættir þeirra eru svo kunnar
að þær er óþarfi að rekja, a.m.k. fyrir lesendur
þessa tímarits. Það lá beint við að Jónas gengi
menntaveg, eins og raunar öll systkini hans.
Því réði ekki eingöngu rik ættarhefð, heldur
ekki síður frábærar gáfur hans og allt það um-
hverfi, sem hann ólst upp við. Mér er þó nær að
halda að fyrstu námsárin hafi verið honum,
eins og mörgum tápmiklum unglingum, lítil
skemmtiganga.
Að loknu stúdentsprófi árið 1928 gerði Jónas hlé á námi og stundaði um
skeið verslunarstörf hjá heildverslun hér í borg og jafnframt kennslu í fram-
haldsskólum. Einn vetur, 1929-30, stundaði hann nám við Niels Brocks Hand-
elsskole i Kaupmannahöfn, sem var allmikið sóttur af íslenskum stúdentum
um skeið. Það varð þó ekki að leið hans lægi að verslunar- og skrifstofu-
störfum. Að loknu námi hjá ,,Brocks“ stundaði hann kennslu, m.a. við Versl-
unarskóla íslands, en hvarf að laganámi við Háskólann árið 1932. Lögfræði-
prófi lauk hann með góðri einkunn í janúar 1937, og þar með var starfsferill
hans til frambúðar ráðinn. Haustið 1937 var hann settur, og síðar skipaður,
bæjarfógeti á Neskaupstað. Jafnframt bæjarfógetastarfinu tók hann fljótlega
þátt i margvislegum opinberum störfum þar á staðnum, stundaði jafnframt
kennslu um skeið og hafði mikil afskipti af félagsmálum, sat m.a. i bæjar-
stjórn frá 1942, þar til hann flutti af staðnum og var seinasta árið forseti
hennar. Eitt skipti bauð hann sig fram við Alþingiskosningarnar, en því munu
hafa ráðið aðrar ástæður en að hann hygði að gera stjórnmál að sínum vett-
vangi. Ógleymt er að eystra tók hann einnig virkan þátt í atvinnulífinu. Hann
gerðist snemma meðeigandi í happasælli útgerð, sem mun hafa orðið fjárhag
hans veruleg lyftistöng. Það var því nóg um að vera og ærinn starfi á hönd-
um, þótt sjálft fógetaembættið væri ekki ýkja umfangsmikið, og ég fullyrði
að Jónas kunni lífinu á Neskaupstað vel. En rætur hans og eiginkonunnar
lágu allar hér syðra. Þau voru bæði borin og barnfæddir Reykvíkingar, hér
voru ættmenni þeirra, gamlir vinir og skólafélagar auk lífshátta, sem í ótal
mörgu eru auðugri að tilbreytni og svipbrigðum en gerist í einangruðum smá-
207