Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Blaðsíða 47
ir á ýmis mál og birtir. Þessir útdrættir eru lagðir til grundvallar í því
yfirliti um dóma 1982 og 1983, sem hér birtist. Vegna rúmleysis er sér-
atkvæða ekki getið.
Hin opinbera útgáfa á dómum mannréttindadómstólsins er prentuð
á vegum Carl Heymanns Verlag K. G., Gereonstrasse 18-32, D-5000
Köln, Þýska sambandslýðveldinu. Út koma tveir flokkar. 1 A-flokki
eru dómarnir sjálfir, en í B-flokki helstu málsskjöl (þ.á m. skýrsla
mannréttindanefndarinnar) og ræður við munnlegan málflutning.
Dómar þeir, sem hér er sagt frá, eru í A-flokki, heftum 48-72 (8. og 9.
dómur 1982 eru saman í hefti). Þ. V.
1982
1. CAMPBELL OG COSANS.
Dómur 25. febrúar 1982. Aðildarríki: Bretland. Málinu var vísað til
dómstólsins 13. október 1980 bæði af mannréttindanefndinni og bresku
ríkisstjórninni. Dómur var kveðinn upp af deild 7 dómara.
Málið snerist um líkamlegar refsingar í skólum í Skotlandi.
I. 3. gi'. mannréttindasáttmálans.
Deilt var um notkun líkamlégra refsinga við agabrotum í skoskum
skólum. Hér stóð svo á, að þeim hafði ekki verið beitt, en nemendur
áttu það á hættu. — 3. gr. er þannig: „Enginn maður skal sæta pynd-
ingum, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“
Mannréttindadómstóllinn taldi:
1. Það getur á stundum vei'ið andstætt 3. gr. að hætta sé á aðgerð-
um sem eigi fá samrýmst henni.
2. Hætta á líkamlegri refsingu vegna agabrots,
a) var hér hvorki pyndingar né ómannleg meðferð
b) vanvirðandi meðferð — auðmýking eða niðurlæging viðkomanda
í eigin augum eða annarra — átti sér ekki stað hér.
Niðurstaða: Ekki brot.
II. 25. gi'. sáttmálans.
í þessari gr. segir m.a., að mannréttindanefndin geti tekið við erind-
um „frá hvaða einstaklingi sem er, einkasamtökum eða hópi einstakl-
inga, sem halda því fram, að samningsaðili hafi brotið á þeim rétt-
indi.....“.
249