Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Page 49

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Page 49
2. ADOLF. Dómur 26. mars 1982. Aðildarríki: Austurríki. Málinu var vísað til dómstólsins 18. desember 1980 af mannréttindanefndinni og 23. janúar 1981 af ríkisstjórn Austurríkis. Dómur var kveðinn upp af deild 7 dómara. Kærandinn, Adolf að nafni, hafði deilt við mann, sem bjó í sama húsi, og var Adolf talinn hafa slangrað til hans. Opinbert mál var höfðað, en það var fellt niður eftir heimild í 42. gr. hegningarlaga Austurríkis, með dómsákvörðun. 1 forsendum hennar voru ummæli, sem kærandi taldi fela í sér fullyrðingu um, að hann hefði lagt til mannsins. I 6. gr. mannréttindasáttmálans er fjallað um rétt til meðferðar mála í dómi og réttarstöðu fyrir dómi. I. Beiting 6. gr. sáttmálans. 1) 1 6. gr. er fjallað um réttindi þess manns m.a., sem „er borinn sökum um glæpsamlegt athæfi“. Hin tilvitnuðu orð hafa sérstaka merk- ingu í mannréttindasáttmálanum. Réttlát meðferð máls fyrir dómi er mikilvægt atriði í lýðræðisþjóðfélagi. Þetta bendir til þess, að orð sátt- málans um þá, sem eru bornir sökum, beri fremur að skýra rúmt en þröngt. 2) 1 6. gr. eru ákvæði um réttindi sökunauts og verður að hafa það í húga við mat á stöðu hans að innanríkisrétti. Niðurstaða: beita má 6. gr. II. Meint brot á 6. gr. 1. Við mat á því, hvort 42. gr. hegningarlaga Austurríkis fái sam- rýmst 6. gr. mannréttindasáttmáans ber í samræmi við fasta dóm- venju í mannréttindadómstólnum að byggja á avikum málsins, en því var í upphafi skotið til mannréttindanefndarinnar af einstaklingi. Það er því ekki hlutverk mannréttindadómstólsins að meta 42. gr. almennt heldur aðeins beitingu hennar í máli kærandans. 2. Ákvæði 25. gr. um kærurétt til mannréttindanefndarinnar setja ekki það skilyrði, að tjón hafi orðið. Tjón skiptir aðeins máli varðandi bætur eftir 50. gr. 3. Dómur hins austurríska sakadóms, sem skýra verður með hlið- sjón af hæstaréttardómi í málinu, lýsir Adolf ekki sekan. Niðurstaða: ekki brot. I dómnum var vísað til 6 eldri dóma mannrétindadómstólsins. 251

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.