Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Síða 56

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Síða 56
de betydelige helbredsmæssige gener, ogsá arbejdsmæssigt, der havde været for- bundet med uheldet, tilkendtes der hende godtgdrelse for svie og smerte i 139 dage.) og U 1990.640 V (godtg0reise ved ansigtslæsion tilkendt for psykisk ubehag ved ansigts udseende, indtil tilstanden blev stationær). (Feitletur AÞO) 5.3 Þjáningatímabil (Þ) styttra en óvinnufærnitímabil (O) (Þ<Ó) Þegar tjónþoli fer seint að vinna að meðferð lokinni eða treystir sér alls ekki að eigin dómi að hefja aftur störf koma upp ýmis vel þekkt vandamál við ákvörðun tímabundinna bótaþátta. I dönskum lagaskýringabókum er skýrt tekið fram að það eitt að vera skráður óvinnufær nægir ekki til þess að öðlast rétt til þjáningabóta. Einungis vanlíðan eða óþægindi í kjölfar líkamstjóns gefa rétt til þjáningabóta, þar til rannsóknum og meðferð er lokið og ekki er að vænta frekari bata.60 Lengd þjáningatímabilsins ræðst hér sem annars staðar alfarið af stöðugleikatímapunktinum. Eftir þennan tíma á tjónþoli ekki lengur rétt á þjáningabótum, en áframhaldandi óþægindi teljast hluti af varanlegu meini og eru metin til miska. Lengd tímabundins atvinnutjóns ræðst í þessu tilfelli líka af stöðugleika- tímapunkti af því að sá tímapunktur er hinn fyrri af þeim tveimur viðmiðunar- tímapunktum, sem í boði eru og tengjast bata og vinnu.61 Þetta þýðir að eftir stöðugleikatímapunkt á tjónþoli ekki rétt á frekari bótum fyrir þjáningar eða tímabundið atvinnutjón. Til frekari glöggvunar má vísa í mynd 3: Fjárhagslegt tjón, þar sem atvinnutjón yrði bætt eftir ferli A. A þennan hátt er farið með öll dæmin í kafla 4.1.2 Bataviðmið hér að framan þar sem fjallað er um ákvörðun stöðugleikatímapunkts við lok spítalameðferðar, innlögn á hjúkrunarheimili eða ef frekari meðferð leiðir ekki til lækkunar miskatölu. Skaðabótalögin taka þannig af allan vafa um meðferð mála þar sem verulega dregst á langinn að tjónþoli fari að vinna eftir að stöðugleikatímapunkti er náð. Aðalkostur þessarar aðferðar er sá að með henni má ákveða lok tímabundinna bótaþátta tjónþola, sem að eigin dómi er óvinnufær án þess að læknisfræðileg skýring óvinnufæminnar eða bein tenging við tjónsatburð liggi fyrir. Okostur aðferðarinnar liggur í því að tímabundið atvinnutjón tjónþola kann í sumum tilfellum að vera vanbætt, nánar tiltekið frá stöðugleikatímapunkti þar til hann fer að vinna aftur, sbr. mynd 4. 5.4 Þjáningatímabil er mjög stutt eða ekkert Fræðilega mætti hugsa sér að þjáningabótatímabilið væri ekkert eða mjög stutt, ef líkamsástand slasaða telst stöðugt þegar við slys eða fljótlega eftir það og ekki er að vænta frekari bata. Slíkt ætti t.a.m. við ef um mjög alvarlegan skaða væri að ræða með mjög háu eða hæsta miskastigi, t.d. ef slasaði lamast 60 Kruse, Anders Vinding og Mpller, Jens: Erstatningsansvarsloven med kommentarer. Kaupmannahöfn 1993, bls. 68 og 80-81, Mpller, Jens: Erstatningsansvarsloven med kommentarer. Kaupmannahöfn 1996, bls. 84. 61 Sjá nánar í kaflanum 4.1 Tvö viðmiðunarkerfi. 280
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.