Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 6
sinnar og atorku. Naut hann mikils álits og trausts í störfum sínum, enda hafði
hann til að bera greind og hæfileika, sem gerðu hann frábærlega hæfan til að
leysa úr hinum flóknustu viðfangsefnum. Hann var víðlesinn á flestum sviðum
lögfræðinnar og gerði sér sérstakt far um að fylgjast með nýjum straumum í
þeim efnum. í Hæstarétti reyndi sífellt á ný og erfið úrlausnarefni, sem tekin
voru föstum og vönduðum tökum. Þar voru á þessum tíma dæmd mál á mörgum
sviðum réttarins, sem voru stefnumarkandi og reyndust traust fordæmi til
framtíðar. Naut hér við staðgóðrar lagaþekkingar, glöggskyggni og mannvits
Gizurar og samdómenda hans. A alllöngu tímabili fyrir og eftir miðja öldina
störfuðu saman í Hæstarétti auk Gizurar dómararnir Þórður Eyjólfsson, Jón
Asbjörnsson, Jónatan Hallvarðsson og Arni Tryggvason. Allir eru þessir hæfu
dómarar nú horfnir af sviðinu, en ég vil leyfa mér að fullyrða að þeir hafi haft
mikil og heillavænleg áhrif á réttarþróunina og stuðlað þar að festu og
stöðugleika.
Ekki einasta nýttist þekking Gizurar Bergsteinssonar og hæfileikar í störfum
hans sem dómari í Hæstarétti, heldur kom hann víða við. Einkum vann hann
mjög að undirbúningi lagasetningar, meðal annars á nýjum sviðum. Þannig átti
hann mjög hlut að mótun löggjafar á sviði samgangna, en óvíða hafa orðið eins
gagngerar breytingar og þar. Hann vann meðal annars að frumvarpi að bifreiða-
lögum og ekki síður er merkt framlag hans til laga um loftferðir, en hann mun
hafa samið frumvarp að fyrstu lögum um þau efni og skýringar með því. Þá átti
hann hlut að samningu löggjafar um réttarfarsmálefni, bæði um meðferð opin-
berra mála og einkamála, svo og að löggjöf um Hæstarétt íslands. Til viðbótar
má hér nefna hegningarlög, lög um barnavemd og lög um lax- og silungsveiði.
Um langt árabil var Gizur og formaður í yfirmatsnefnd samkvæmt lögum um
lax- og silungsveiði. Þá ritaði hann einnig greinar um lögfræðileg málefni í
ýmis rit.
Rétt er og að geta þess að Gizur var mikill unnandi íslenskrar tungu og jafnan
var það sameiginlegt kappsmál hans og samdómenda hans að dómar Hæstaréttar
væru ritaðir á góðu íslensku máli eins og dómar réttarins á ofangreindu tímabili
bera glöggt vitni um. Ber að vona að ætíð takist að fylgja því góða fordæmi.
Gizur var gæfumaður í einkalífi. Eiginkona hans, Dagmar Lúðvíksdóttir,
reyndist honum mikil stoð og stytta, en þau gengu að eigast á árinu 1931. Eign-
uðust þau 4 börn, Lúðvík, hæstaréttarlögmann, Bergstein, verkfræðing og
brunamálastjóra rikisins, Sigurð, sýslumann á Akranesi og Sigríði, meinatækni.
Er þeim öllum, sem og öðrum aðstandendum, vottuð innileg samúð við fráfall
Gizurar.
Hæstiréttur íslands minnist Gizurar Bergsteinssonar með mikilli þökk og
virðingu. Með mikilvirkum störfum sínum átti hann stóran þátt í að leggja
traustan grunn, sem síðan hefur verið byggt á. Sú ósk skal látin hér í ljós, að
Hæstarétti megi auðnast um alla framtíð að starfa af þeirri vandvirkni, hollustu
og trúnaði, sem einkenndu öll hans störf.
Haraldur Henrysson
230