Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 89
Samkvæmt 3. mgr. skulu listamenn og íþróttamenn sem eru í heimsókn
kostaðri af hinu opinbera í þeirra rrki vera undanþegnir skattlagningu í því rrki
sem þeir koma fram í og vera skattlagðir einungis í því ríki sem þeir koma frá.
Þetta ákvæði er í samræmi við það sem gilti í gamla samningnum en saknar
fyrirmyndar í OECD.
í 2. og 3. tl. 3. gr. tskl. er að finna heimildir til skattlagningar erlendis
búsettra listamanna og íþróttamanna og í 2. tl. 71. gr. s.l. er að finna nánari
útfærslu á þeirri skattlagningu sem getur verið ýmist með 20% eða 13%
skatthlutfalli auk útsvars.
3.3.4.14 18. grein. Eftirlaun o.fl.
í 18. grein er fjallað um eftirlaun, lífeyri og greiðslur samkvæmt almanna-
tryggingalöggjöf samningsríkjanna. Samkvæmt 1. mgr. skal einungis skatt-
leggja þessar greiðslur í því ríki sem þær eru greiddar frá. Með eftirlaunum er
bæði átt við eftirlaun frá einkaaðilum og hinu opinbera.
íslenska heimild til þess að skattleggja eftirlaun o.fl. er að finna í 2. tl. 3. gr.
tskl., sbr. nánar 2. tl. 71. gr. s.l. Venjulegt skatthlutfall er notað en veittur er
persónuafsláttur. Slíka innri heimild vantar í norsk lög. Til þess að koma í veg
fyrir að slíkar greiðslur frá Noregi sleppi alveg við skattlagningu er því ríki þar
sem greiðsluþeginn er búsettur heimilt að beita varaskattlagningarrétti skv. 2.
mgr. 26. gr. samningsins, sbr. nánar umfjöllun um þá grein hér á eftir.
18. greinin er óbreytt frá gamla samningnum.
3.3.4.15 19. grein. Opinbert starf
19. greinin gildir um launagreiðslur frá opinberum aðilum, en þær eru
einungis skattskyldar í því ríki sem greiðir þær, sbr. þó 2. mgr. 18. gr. Ef
lagaheimild skortir til skattlagningar þeirra í greiðsluríkinu, kemur til varaskatt-
lagningarréttar heimilisfestarríkisins. Eftirlaunagreiðslur frá hinu opinbera falla
eins og áður segir undir 18. grein. 17. grein tekur til listamanna og íþróttamanna
sem eru í opinberri þjónustu.
í 3. mgr. er, að fyrirmynd OECD, tekið inn nýtt ákvæði um laun í tengslum
við atvinnurekstur á vegum opinberra aðila. Þar er tekið fram að um slík laun
fari eftir ákvæðum 15., 16. og 17. gr. samningsins.
3.3.4.16 20. grein. Námsmenn og nemar
I 20. gr. er fjallað um námsmenn og nema sem dveljast tímabundið við nám
í einu samningsríki og eru eða voru síðast fyrir dvölina heimilisfastir í öðru
samningsríki. I greininnni er því slegið föstu að námsmaðurinn eða neminn
skuli ekki í dvalarríkinu vera skattlagður af fjárhæð sem upprunnin er utan þess
ríkis og hann fær til að standa straum af framfærslu sinni, námi og þjálfun.
Greininni er örlítið breytt frá gamla samningnum varðandi a lið þar sem gerð er
sú krafa að námið í dvalarríkinu verði að vera þess eðlis að það gæti veitt rétt
til opinberra námslána eða styrkja í því ríki. Hvað nám á Islandi varðar verður
313