Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 24
miskastig er 30%, 35%, 40%, 45% eða 50%
skulu örorkubætur vera 160%, 170%, 180%,
190% eða 200% af bótum fyrir varanlegan
miska.
Þegar miskastig er 55% eru örorkubætur
225% af bótum fyrir varanlegan miska. Þegar
miskastig er 60%, 65%, 70%, 75%, 80% eða
85% skulu örorkubætur vera 250%, 275%,
300%, 325%, 350% eða 375% af bótum fyrir
varanlegan miska. Þegar miskastig er 90%,
95% eða 100% skulu örorkubætur vera 400%
af bótum fyrir varanlegan miska.
Hörð gagnrýni hefur komið fram á efni þessarar greinar og tengsl hennar við
6. gr. laganna. Bent hefur verið á mismunun milli tjónþola eftir því undir hvora
greinina þeir falli.15 Að auki sé oft vafasamt, í hvorn dilkinn skuli draga
einstaka tjónþola. Aður en gerð er nánari grein fyrir þessari gagnrýni þykir rétt
að lýsa stuttlega meginefni 8. gr.
Undir greinina falla að meginstefnu til þeir, sem engar eða óverulegar
vinnutekjur hafa. I greininni er sérstaklega getið um börn, án þess að nánar sé
tilgreint til hvaða aldurs það nái. Auk þeirra munu stærstu hóparnir, sem greinin
tekur til, vera heimavinnandi húsmæður og námsmenn.
Bætur til þeirra, sem falla undir greinina eru ekki byggðar á mati á
fjárhagslegri örorku, heldur eru bótaupphæðir leiddar af hinni hefðbundnu
læknisfræðilegu örorku. Þannig er fjártjón vegna varanlegrar örorku bætt á
grundvelli miskastigs skv. 4. gr. Væri miski minni en 15% greiddust engar
fjártjónsbætur skv. skaðabótalögunum frá 1993, en eftir lagabreytinguna á
miðju ári 1996 (1. nr. 42/1996) hefur lágmarkið verið fært í 10%. Fjártjónsbætur
fara svo stighækkandi með hækkandi miskastigi. Hámarksbætur til þess, sem
hlýtur 100% örorku verða 16 millj. kr. m.v. vísitölu skaðabótalaganna. Sé sú
fjárhæð yfirfærð á stuðulinn 7,5 fyrir 25 ára tjónþola jafngildir hún bótum
samkvæmt 6. gr. skaðabótalaganna miðað við 2,1 millj. kr. í árslaun eða 178
þús. kr. í mánaðarlaun. Sé hins vegar litið á 16 millj. króna bótaupphæðina í
ljósi þess sem gilti fyrir tíma skaðabótalaganna og þá reiknað útfrá
tryggingafræðilegum töflum miðað við 6% afvöxtun og 33,3% skerðingu (sbr.
dálk 5 í töflu 2 hér að framan) má líta á þetta sem samsvarandi 1.600.000 króna
árslauna eða 133 þús. kr. mánaðarlauna.
Gagnrýni á efni 8. gr. er ýmiss konar. Skipting tjónþola í tvær fylkingar, eins
og gert er í 6. og 8. gr. skaðabótalaganna, veldur óhjákvæmilega misræmi og
afmörkunarvanda. Notkun læknisfræðilegs örorkumats í 8. gr. en fjárhagslegs
örorkumats í 6. gr. getur leitt til óeðlilegrar niðurstöðu. Niðurfelling bótaréttar
15 Dr. jur. Bo von Eyben, tilvitnuð grein bls. 101. Jón Erlingur Þorláksson, tilvitnað rit bls. 43-44.
248