Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 27
tekjuöflunar utan heimilis samkvæmt þeim viðmiðunum, sem að framan
greinir. Ekki er þó unnt að útiloka, að örorka til heimilisstarfa geti orðið afleið-
ing slyss, þótt hún yrði ekki talin þess eðlis, að af henni leiði skerta eða jafn
skerta möguleika til tekjuöflunar utan heimilis. Sem dæmi má nefna hreyfi-
hömlun af tilteknu tagi. Við þær aðstæður yrði að meta viðkomandi einstaklingi
fjárhagslega örorku vegna minnkaðrar getu til heimilisstarfa. Hún yrði þá bætt
á grundvelli lágmarkstekjuviðmiðunar 7. gr. laganna.
I tilviki námsmanns yrði almennt að líta til mismunar á atvinnutækifærum
fyrir og eftir slys. Við þær aðstæður að námslok tengd starfsferli eða starfs-
réttindum megi teljast fyrirsjáanleg yrðu þó metnir möguleikar námsmannsins
til þess að gegna því starfi sem hann stefndi að með menntun sinni. Þetta á við
hvort heldur slys valdi því að hann verði að hætta námi eða slys dragi úr
starfsgetu í fyrirhuguðu starfi. Tekjuviðmiðun í slíku tilviki færi eftir sér-
reglunni í 2. mgr. 7. gr., svo sem við leggjum til að henni verið breytt.
Varðandi atvinnulausan mann er þess sérstaklega að geta, að þótt hann falli
undir 8. gr. getur tekjuviðmiðun fyrir slys átt við um hann, a.m.k. að einhverju
leyti. Sérstaklega getur það átt við í ljósi tillagna okkar um breytingu á 7. gr. um
þriggja ára tekjuviðmiðun fyrir slys í stað eins árs í gildandi lögum.
Sérstaklega ber að geta þess, að böm falla undir 8. gr. Mat á fjárhagslegri
örorku bams verður að fara eftir stöðluðum reglum, þar eð vart eru tiltækar
efnislegar viðmiðanir í hinum einstöku tilvikum. Lagt var til grundvallar, að 8.
gr. taki til fullnaðs 16 ára aldurs og að bömum yrði bættar tekjur frá 17 ára aldri.
Með því að tekjur séu aðeins bættar frá því aldursmarki var gert ráð fyrir, að
úrskurðaðar bætur til bama ávaxtist óskertar með 4,5% ársvöxtum frá útborg-
unardegi til 17 ára aldurs. Barnið fengi bætur þannig skertar, og þar með er lagt
á það sjálft, eða forráðamenn þess, að ávaxta bæturnar á umræddu æviskeiði.
Var þetta innifalið í töflu 6. greinar tillögu okkar. Athygli skal vakin á því að
þetta atriði eitt og sér veldur umtalsverðri skerðingu bóta fyrir yngri böm
samanborið við gildandi lög. Launaviðmiðun bama yngri en 17 ára yrðu lág-
markslaun skv. 3. mgr. 7. gr. að viðbættum 30%, Þ.e. kr. 1.820.000 á ári. Sú
launaviðmiðun er ekki fjarri meðalatvinnutekjum í þjóðfélaginu fyrir fullt
starf.18
Með þeim efnisreglum, sem að framan greinir, ætti ekki að skipta máli
varðandi fjárhæð bóta, hvort tjónþoli félli undir reglu 7. eða 8. gr. Af þeirri
ástæðu töldum við heldur ekki tilefni til að gera tillögu um ítarlegri reglur en
fyrir eru í gildandi lögum um það, undir hvora greinina einstakir tjónþolar falla.
18 Alþingistíðindi 1995-1996. A-deild, bls. 3333.
251