Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 22
eða ef ætla má að annar mælikvarði sé réttari um
framtíðartekjur tjónþola.
Þrátt fyrir ákvæði 1.-2. mgr. þessarar greinar
skal aldrei miðað við lægri árslaun en tilgreint er
í þessari töflu:
66 ára og yngri 1.400.000
67 ára 1.300.000
68 ára 1.200.000
69 ára 1.100.000
70 ára 1.000.000
71 ára 900.000
72 ára 800.000
73 ára 700.000
74 ára og eldri 600.000
Ekki skal miða við hærri árslaun en
4.500.000 krónur.
Ákvæði 1. mgr. um tekjur á „jafnlengdarári", þ.e. tekjur á síðustu 12
mánuðum fyrir þann dag, er tjón varð, hefur verið gagnrýnt.14 Þessi viðmiðun
er til þess fallin að valda erfiðleikum í framkvæmd. Að jafnaði liggja tekjur
manna skýrast fyrir miðað við almanaksár, þ.e. á skattframtölum. Ákvörðun
„jafnlengdarárstekna" krefst hins vegar sérstakrar athugunar, þar sem tímasetja
þarf tekjur nákvæmlega innan ársins. Slíkt er oft háð erfiðleikum og óvissu, auk
þess sem þessi aðferð gefur möguleika á vissri misnotkun.
Við lögðum til að snúið yrði til fyrri framkvæmdarvenju um að tekjumar
miðist við almanaksár og miðað verði við meðaltal þriggja síðustu ára fyrir slys.
Þær yrðu síðan færðar upp til verðlags þess dags er tjónþola er metin varanleg
örorka. Þetta er sama tímamark og miðað er við í tillögum okkar að 1. mgr. 6.
gr. Af þessu leiðir að vísitöluleiðréttingin í lokamálslið 2. mgr. 15. gr. laganna
á ekki lengur við og fellur burt. Til að taka af tvímæli verði jafnframt kveðið
beinlínis á um, að til „heildarvinnutekna“ skuli m.a. bæði telja framlag vinnu-
veitanda og launþega til lífeyrissjóðs.
Viðmiðun við síðustu þrjú tekjuár er að jafnaði eðlileg þegar um er að ræða
mann í launuðu starfi. Launatekjur liðinna ára eru oftast góð vísbending um
launatekjur komandi ára. Þetta á þó ekki næstum alltaf við. Hjá ungu fólki, sem
er að hefja starfsferil sinn, eru líkur fyrir hækkandi launum. Hjá fullorðnu fólki,
sem nálgast lok starfsævinnar, eru lrkur fyrir lækkandi launum. Til þessara þátta
er tekið tillit í margfeldisstuðli 6. gr. Launatekjur liðinna ára eru hins vegar ekki
góður mælikvarði ef breytingar höfðu orðið á högum tjónþola skömmu áður en
slys varð eða þegar fullyrða má að slíkar breytingar standi fyrir dyrum. Má
nefna sem dæmi að tjónþoli hafi skipt um starf þannig að breyting hafi orðið á
tekjum eða látið af starfi og hafið töku lífeyris. I slíkum tilvikum er eðlilegra að
14 Jón Erlingur Þorláksson, tilvitnað rit bls. 45.
246