Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 5

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 5
I lögunum er kveðið á um réttindi og skyldur réttargæslumanns, þar á meðal að þóknun hans greiðist úr ríkissjóði og teljist til sakarkostnaðar. Of langt mál yrði að fjalla sérstaklega um þessi ákvæði laganna hér á þessum vettvangi, en þó er rétt að fara nokkrum orðum um þóknun réttargæslumanns. Að sjálfsögðu er hér um að ræða aukinn kostnað fyrir ríkissjóð því að sakarkostnaður greiðist yfirleitt illa. Við því er að sjálfsögðu ekkert að segja, réttaröryggið kostar gjaman sitt. Það er ýmist dómari eða lögregla sem ákveður þessa þóknun. Sé réttargæslu- maður brotaþola hinn sami við rannsókn máls og við meðferð þess fyrir dómi ákveður dómari þóknun í einu lagi. Annars ákveður lögregla þóknun þess sem var réttargæslumaður við rannsóknina. Þóknun réttargæslumanns greiðist úr ríkissjóði, en telst til sakarkostnaðar, og er hér um sömu reglu að ræða og þegar verjandi á í hlut. Nokkrar starfsvenjur og viðmiðanir hafa skapast um ákvörðun þóknunar verjanda í opinberum málum. Þessi þáttur í rekstri opinberra mála þarf þó að vera, og reyndar er, í nokkurri endurskoðun þótt ekki verði sagt að sú endur- skoðun sé stöðug. Eðlilegt starfssvið verjanda er nokkuð vel þekkt og víst er að í ýmsum tilvikum er vinna verjanda bæði erfið og tímafrek. Verjandi þarf að afla gagna, boða vitni, undirbúa yfirheyrslur og málflutning og ýmislegt fleira er í hans verkahring. Verjandi þarf að sinna hagsmunum skjólstæðings síns með ýmsum öðrum hætti, sjálfsagt á svipaðan veg og réttargæslumaður sinnir hags- munum skjólstæðings síns, en því má ekki gleyma að sakaðir menn eru oft ungir að árum. Starfssvið réttargæslumanns er hins vegar í mótun og vera kann að þeir sem eru tiinefndir og skipaðir réttargæslumenn hafi misjafnar skoðanir á því hvert það er og hversu víðtækt. Um það hefur engin sérstök umræða farið fram. Hins vegar hafa heyrst raddir lögmanna sem halda því fram að réttargæslumenn eigi að vera jafnsettir verjendum að því er þóknun varðar. Eflaust má færa góð rök fyrir þeirri skoðun. Breytingarlögin eru tiltölulega fáorð um skyldur og réttindi réttargæslu- manna og er varla á öðru von og ekkert við því að segja. Eðlilegast væri að um störf réttargæslumanna sköpuðust venjur sem byggðust á því að brotaþolar fái góða þjónustu sem þó verður að vera innan skynsamlegra marka og að þessi þjónusta sé sem jöfnust hver svo sem á í hlut. Þó verður að hafa í huga að þarfirnar kunna að vera mismunandi. Tíminn verður að leiða í ljós hvort þessi vinna verður eins krefjandi og vinna verjenda og hvort sömu sjónarmið eiga að gilda um ákvörðun þóknunar fyrir þessi störf. Því ber að fagna að staða brotaþola hefur verið verulega styrkt. Það þarf síðar að skoða að fenginni reynslu hvort nóg hefur verið að gert og hvort ástæða er til að ganga lengra. I breytingarlögunum eru ákvæði um skýrslutöku af brotaþola yngri en 18 ára þess efnis að beinist rannsókn að broti á XXII. kafla almennra hegningarlaga, 285
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.