Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 21

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 21
Á honum voru þannig taldar hafa hvflt sérstakar skyldur til aðgæslu og eftirlits. Einnig var litið til þess að umræddur bátur gat að ýmsu leyti verið varhuga- verður við flutning á hópi barna, enda gerð hans miðuð við önnur hlutverk. Var því þörf mikillar varúðar við stjórn hans og stöðugrar umsjónar með bömunum. Með því að gæta þessa ekki var talið að leiðbeinandinn hefði brotið gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem lýsir refsiverðar meiri háttar lfk- amsmeiðingar af gáleysi. Leiðbeinandinn var dæmdur til greiðslu sektar að fjár- hæð kr. 80.000. 2.2 Skaðabótaábyrgð 2.2.1 Almenn atriði. Skilgreiningar og helstu hugtök. Það hlýtur að teljast mun raunhæfara að á skaðabótaábyrgð geti reynt þegar óhöpp verða í æskulýðsstarfi heldur en refsiábyrgð. I skaðabótaábyrgð felst skylda hins bótaskylda að greiða skaðabætur fyrir það tjón sem hlýst af hátt- semi hans. I daglegu lífi geta menn orðið fyrir tjóni vegna ýmiss konar óhappa sem verða rakin til hegðunar þeirra sjálfra eða af hreinum tilviljunum. Tjón af þessu tagi verða menn yfirleitt að bera sjálfir. Gildir þetta þó að böm eða ung- lingar eigi í hlut. Til þess að skaðabótaskylda geti skapast verður yfirleitt að vera hægt að benda á einhvern annan en tjónþolann sjálfan sem telja má að hafi valdið tjóninu með athöfn og eftir atvikum athafnaleysi. Sé slíkum aðila til að dreifa þarf að kanna hvort skilyrði séu að lögum til að leggja á hann skaðabóta- ábyrgð. I íslenskum rétti eru taldar gilda nokkrar lagareglur sem láta sig það varða hvernig skaðabótaskylda stofnast. Aðalreglan í þessu efni er nefnd sakarreglan og hefur hún verið orðuð svo: Maður ber skaðabótaábyrgð á tjóni, sem hann veldur með saknæmum (þ.e. af ásetn- ingi eða gáleysi) og ólögmætum hætti, enda sé tjónið sennileg afleiðing af hegðun hans og raski hagsmunum, sem vemdaðir eru með skaðabótareglum. Það er og skil- yrði að sérstakar huglægar afsökunarástæður eigi ekki við um tjónvald, svo sem æska eða skortur á andlegri heilbrigði.1 (Feitletranir eru gerðar af höfundi). Til þess að skaðabótaskylda stofnist samkvæmt þessari reglu þarf öllum skilyrðum hennar að vera fullnægt. Oftast veldur það vafa við beitingu hennar hvort tjónvaldur hafi valdið tjóninu af ásetningi eða gáleysi, þ.e.a.s. hvort hegð- un hans sé saknæm. Hegðun tjónvaldsins þarf samkvæmt þessu skilyrði að hafa verið ámælisverð á einhvern hátt. Þá er einkum athugað, hvort tjónvaldur hafi hegðað sér öðru vísi en ætla má að góður og gegn maður hefði gert í sömu að- stöðu. Þetta skilyrði er því sýnilega afar matskennt. Mat getur líka komið við sögu við athugun á öðrum skilyrðum reglunnar. Þegar skoðað er hvort tjóni hafi verið valdið með ólögmætum hætti þarf oft að líta til ýmissa laga og reglna sem 1 Sjá Arnljót Björnsson: Skaðabótaréttur. Reykjavík, 1988, bls. 54. 301
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.