Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 30

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 30
til greina í undantekningartilvikum. Sjálfsagt má almennt við það rniða að sér- stök umsjónarskylda með börnum og ungmennum sé almennt úr sögunni þegar þau hafa náð sjálfræðisaldri, þ.e. við 18 ára aldur, sbr. 1. gr. lögræðislaga nr. 71/1997. Löggjafinn hefur metið það svo að fólk sem náð hefur þessum aldri sé almennt fært um að bera ábyrgð á gerðum sínum. Má gera ráð fyrir að for- svarsmönnum æskulýðsstarfsemi sé heimilt að ætla að svo sé, þó að alltaf verði að hafa í huga að þeir sem bjóða öðru fólki til þátttöku í tómstunda- eða skemmtistarfi þurfa að viðhafa viðhlítandi aðgát. 2.2.3 Hver ber ábyrgð? 2.2.3.1 Vinnuveitandaábyrgð Eins og áður segir er það almenn regla að vinnuveitandi beri ábyrgð á tjóni sem starfsmaður hans veldur með saknæmunr og ólögmætum hætti í starfi sínu. Þessi regla er oftast kölluð reglan um vinnuveitandaábyrgð eða húsbónda- ábyrgð. Vera má að vinnuveitandi eigi sjálfur sök á tjóni sem starfsmaður hans veldur. Til dæmis kann hann að hafa sagt starfsmanni sínum rangt til, gefið hon- um ófullnægjandi leiðbeiningar, ekki haft nægilegt eftirlit með honum eða jafnvel látið óhæfan starfsmann vinna verk.6 Ef t.d. æskulýðsfélag réði vitandi vits dæmdan kynferðisafbrotamann til að sinna umönnun barna teldist slíkt vafalaust saknæmt. Félagið yrði sjálfsagt látið bera ábyrgð á misgjörðum mannsins sem hann ynni í skjóli starfs. Þessi ábyrgð yrði einfaldlega byggð á sök fyrirsvarsmanna félagsins sem í hlut ætti. Eftir reglunni um vinnuveitanda- ábyrgð fellur bótaskylda hins vegar á vinnuveitanda þótt hann eigi sjálfur enga sök á tjóni. Helstu skilyrði slíkrar ábyrgðar eru, að starfsmaður sé settur undir boðvald vinnuveitanda (2.2.3.1.1), að hegðun starfsmanns verði talin saknæm (2.2.3.1.2), og að tjóni hafi verið valdið í starfi (2.2.3.1.3). 2.2.3.1.1 Starfsmaður settur undir boðvald vinnuveitanda Að því er varðar æskulýðsstarfsemi er það sérstakt álitaefni hvort sjálfboða- liðar geti talist starfsmenn í skilningi reglunnar um vinnuveitandaábyrgð og þannig skapað æskulýðsfélögum bótaábyrgð vegna skaðaverka sinna. Hið al- menna skilyrði að þessu leyti hefur verið talið að vinnuveitandi sé húsbóndi starfsmanns í þeim skilningi að hann hafi rétt til að stjórna vinnunni, þar á nteð- al að ráða starfsmenn og segja þeim upp starfa, gefa þeim fyrirskipanir og leið- beiningar og líta eftir framkvæmd vinnunnar.7 Það er ekki víst að boðvald yfir sjálfboðaliðum hafi að öllu leyti sömu þýð- ingu og boðvald yfir launuðunr starfsmönnum. Stafar það af því að launaðir starfsmenn hafa ríkari skyldur en sjálfboðaliðar til að inna starfa sinn af hendi 6 Sjá Arnljót Björnsson: Skaðabótaréttur. Reykjavík, 1988, bls. 91. 7 Sjá Arnljót Björnsson: Tengsl vinnuveitanda og starfsmanns sem skilyrði vinnuveitandaábyrgðar. Kaflar úr skaðabótarétti. Reykjavík, 1990, bls. 13. 310
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.