Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 34

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 34
verk sjálfsagt oftast unnin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi þó að svo þurfi ekki endilega að vera. Leiði 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga til þess að bótaskylda starfsmanns eða sjálfboðaliða stofnist, þ.e. sé ekki um ábyrgðartryggingu að ræða eða hafi tjóni verið valdið af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, kemur til kasta ákvæða 23. gr. laganna. I 1. mgr. 23. gr. er fjallað um það tilvik að vinnuveitandi hafi greitt bætur til tjónþola vegna saknæmrar hegðunar starfsmanns síns. Er þá ákveðið, að vinnuveitandinn geti aðeins endurkrafið starfsmanninn um slíkar bætur að því marki sem telja rnegi sanngjarnt þegar litið sé til sakar og stöðu starfs- mannsins og atvika að öðru leyti. Telja verður líklegt að einungis í undantekn- ingartilvikum komi til greina að vinnuveitandi geti endurkrafið sjálfboðaliða sem innt hefur starf af hendi án endurgjalds. I 2. mgr. 23. gr. skaðabótalaga er kveðið á um að skerða megi eða fella niður skaðabótaábyrgð starfsmanns gagnvart tjónþola ef það verði talið sanngjarnt þetar litið sé til atvika sem getið sé í 1. mgr. og hagsmuna tjónþola. Bætur, sem starfsmaður hafi greitt, geti hann krafið úr hendi vinnuveitanda að því marki sem bótaábyrgð hvíli endanlega á vinnuveitanda eftir 1. mgr. Þessar reglur um réttarstöðu starfsmanna eiga auð- vitað allar við í æskulýðsstarfsemi, hvort sem starfsmaður hefur verið launaður eða ekki. 2.2.4 Atriði sem geta fyrirbyggt skaðabótaskyldu Því má velta fyrir sér, hvort æskulýðsfélög geti komið sér undan að bera skaðabótaábyrgð samkvæmt þeim almennu reglum sem hér hefur verið lýst, t.d. með gerð samninga við forráðamenn bama þar sem kveðið væri á um að börn tækju þátt í starfsemi á eigin áhættu. Líklegt er að slíkir samningar yrðu sjaldn- ast skuldbindandi. Má í þessu samhengi vísa til ákvæða 27. gr. skaðabótalaga sem reisa skorður við samningsgerð um frávik frá reglum laganna tjónþolum, og raunar í vissum tilvikum einnig bótaskyldum aðilum, til óhags. Enn fremur má vísa til þess að 24. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993 kveður á um að yfirlýsingu um ábyrgð megi því aðeins gefa að yfirlýsingin veiti viðtakanda meiri rétt en hann hafi samkvæmt gildandi lögum. Yfirlýsingar um afsal ábyrgðar standast því varla tilvitnað ákvæði samkeppnislaga. Um þetta má vísa til H 1989 329 þar sem sambærilegt ákvæði eldri laga var talið standa samningi milli einstaklinga um undanþágu frá ábyrgð fyrir þrifum. Það er hins vegar annað mál að ýmis konar viðvaranir sem æskulýðsfélög gefa út og koma á framfæri geta verið til þess fallnar að draga úr ábyrgð þeirra. Gerist það þá með þeim hætti að skeytingarleysi tjónþola um fram kornnar við- varanir og leiðbeiningar leiðir til þess að hann verði annað hvort talinn hafa tekið áhættu sem veldur brottfalli bótaréttar eða talinn hafa sýnt af sér eigin sök sem leiði til niðurfellingar bótaréttarins eða lækkunar bóta. Má í þessu sam- hengi vísa til H 1976 145 sem fjallaði um slys sem varð við apabúrið í Sædýra- safninu í Hafnarfirði og reifaður er að framan á bls. 306 Þar varð áberandi viðvörunarskilti þess valdandi að bótakrafa var lækkuð á grundvelli eigin sakar 314
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.