Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 35

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 35
tjónþolans. Var tjónþoli látinn bera helming tjóns síns sjálfur en hann var 11 ára þegar slysið varð. í þessu samhengi er ástæða til að taka fram að eftir því sem bömin em yngri þarf meira til að koma svo þau teljist hafa tekið áhættu sem veldur brottfalli bótaréttar eða þau teljist hafa sýnt af sér eigin sök. Sé um mjög ung börn að ræða kemur slíkt tæpast til greina, sbr. H 1961 620. Það mál snerist um eigin sök tæplega 6 ára drengs sem varð fyrir bifreið. f héraðsdóminum segir: „Með tilliti til þess, hvernig atvikum var hér háttað, og sérstaklega þegar hafður er í huga hinn ungi aldur drengsins, þá þykja ekki vera fyrir hendi nægar ástæður til þess að takmarka fébótaábyrgð stefnda á slysinu“. Niðurstaðan um þetta var staðfest í Hæstarétti.16 3. LOKAORÐ Hér að framan kemur fram að almennar reglur skaðabótaréttar gilda hér á landi um skaðabótaábyrgð þeirra aðila sem standa fyrir félags- og tómstunda- starfi fyrir böm og unglinga. Við mat á bótaskyldu er í réttarframkvæmdinni litið til þeirra atriða sem telja má að geti skipt máli við mat á sök fyrirsvars- manna og starfsmanna í slíku starfi. Gerðar eru kröfur um eftirlit og umönnun sem taldar eru sanngjarnar og hæfilegar hverju sinni miðað við þá starfsemi sem fram fer og aldur þeirra bama og ungmenna sem í hlut eiga. Tekið er mið af því sem góður og gegn maður verður talinn hafa átt að gera við sömu aðstæður og eftirlits- og umönnunaraðilinn bjó við er hann tók ákvörðun sína. Hvert tilvik hlýtur sérstaka athugun þar sem þessi meginsjónarmið em lögð til grundvallar. Eg tel ekki rétt að sett verði sérstök lög um skaðabótaábyrgð á þessu sviði. Gildandi réttarframkvæmd mætir að mínu mati vel þeim þörfum sem hér eru uppi. Tel ég reyndar að jafnaði þýðingarmikið, að ekki séu settar sérreglur um skaðabótaábyrgð á einstökum málasviðum nema alveg sérstaklega standi á, þar sem slíkt er til þess fallið að veita frávik frá reglum sem taldar eru gilda á öðrum sambærilegum sviðum án nægilegra tilefna. Ekki verður heldur séð að æsku- lýðsstarfsemi fylgi sérstök hætta sem réttlætt geti sérreglur sem þyngja skaða- bótaábyrgðina umfram það sem almennt gildir. 16 Sjá hér Arnljót Björnsson: Skaðabótaréttur. Reykjavík,1988. bls. 85.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.