Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 50
3. VARNARÞING
3.1 Almennt
Reglur Lúganósamningsins um vamarþing eru í II. hluta hans. I því sem hér
fer á eftir verður fyrst gerð grein fyrir meginreglu um heimilisvamarþing í 2. gr.
Því næst verður fjallað um sérstök varnarþing samkvæmt 5.-6. gr. A. Þá verður
vikið að ákvæðum 7.-15. gr. um vamarþing í vátryggingar- og neytendamálum.
Þessu næst verður gerð grein fyrir 16. gr. um skylduvamarþing. Þá verður fjall-
að um samningsvamarþing samkvæmt 17. gr. Loks verður stuttlega gerð grein
fyrir reglum um könnun á vamarþingi og því hvort mál sé tækt til meðferðar,
litis pendens og skyldum kröfum og loks bráðabirgða- og tryggingarráðstöf-
unum, sbr. 19.-24. gr.
3.2 Meginreglan
3.2.1 Almennt
Meginregla Lúganósamningsins er sú að lögsækja skal menn fyrir dóm-
stólum þar sem þeir eiga heimili, sbr. 2. gr. Hún er reist á þeirri forsendu að
heimili manna í samningsríki skapi þau tengsl sem eru nægjanleg til að réttlæta
að þeim sé gert að hlíta dómi í því ríki. Samtímis er bannað að beita þann mann
misrétti, að því er varnarþing snertir, sem búsettur er í samningsríki, en er ekki
ríkisborgari þess.45 Reglan þessi er því í samræmi við hina kunnu meginreglu
alþjóðlegs einkamálaréttarfars actor sequiturforum rei. Hugtakið heimili (dom-
icil) hefur því grundvallarþýðingu við beitingu á varnarþingsreglum Lúganó-
samningsins.
Þrátt fyrir þá miklu þýðingu sem hugtakið heimili hefur er ekki að finna
neina skilgreiningu á því í samningnum. Ástæða þess er fyrst og fremst sú að
því er mismunandi háttað hvaða skilning menn leggja í hugtak þetta í einstök-
um samningsríkjum. Sérfræðinganefndin sem vann að gerð Brusselsamningsins
taldi það of miklum erfiðleikum háð að setja fram samræmda skilgreiningu á
hugtakinu.46 Þess í stað voru settar fram lagaskilareglur sem vísa til landsréttar
(lex fori) þegar ákvarða skal hvar aðili eigi heimili, sbr. 52. og 53. gr.
3.2.2 Einstaklingar
Þegar ákvarða skal hvort aðili eigi heimili í samningsríki þar sent mál hefur
verið höfðað gildir sú meginregla um einstaklinga að dómstóllinn skal beita
landsrétti, sbr. 1. mgr. 52. gr. Ef mál er höfðað hér á landi á grundvelli Lúganó-
samningsins á hendur hérlendis búsettum aðila ber samkvæmt þessu að beita
ákvæðum V. kafla eml.
Eigi aðili ekki heimili í því ríki þar sem mál hefur verið höfðað skal dóm-
stóllinn, þegar hann tekur afstöðu til þess hvort aðilinn eigi heimili í öðru
samningsríki, beita lögum þess ríkis, sbr. 2. mgr. 52. gr. Rökin fyrir þessari
45 Alþt. 1995, A-deild, bls. 2562.
46 Sjá Torben Svenné Schmidt: Intemational formueret, bls. 60.
330