Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 94

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 94
þess einkaréttar, sem þannig var stofnað til, og snúa eins fljótt og framast var unnt aftur til þeirra grundvallarreglna, sem samfélög frjálsra borgara eru sögð lúta. Því var miður, að stjómmálamenn okkar reyndust þess ekki umkomnir heldur. Með fiskveiðistjórnarlögum, sem í fyrstu höfðu hver um sig tímabundið gildi, var festur í sessi einkaréttur þeirra til fiskveiða, sem fyrir tilviljun höfðu stundað þá atvinnu á hinu gullna augnabliki, og í beinu framhaldi af því var þeim veittur réttur að selja alþýðunni sposlur af þjóðargjöf sinni, gegn greiðslu á gífurlegum auðæfum þeim til handa. Þeirri stöðu hafa þeir haldið síðan. Líkt og safn af fjalli létu alþingismenn reka sig til að skapa umbjóðendum þeirra hagsmunasamtaka, sem ein höfðu með uppbyggingu kerfisins að gera, þá að- stöðu sem þeir síðan hafa haft. Hinn almenni borgari stendur eftir með þá hæðni glymjandi í eyrum, að fiskimiðin við ísland séu „sameign þjóðarinnar“. Hér kemur upp í hugann önnur skýring, sem Guð gefi að sé firra ein, og tengist þeirri staðreynd að fjárframlög til stjómmálaflokka, sem komið hafa sér fyrir á þingi, eru leynileg, ef þau eru þá einhver. En hvað sem því líður má öll- um vera kunnugt um afleiðingar þess sem gerst hefur. Óbreyttir íslendingar eiga ekki lengur fyrsta rétt til árangurs af eigin vinnusemi. Liðin er sú tíð, að al- mennir borgarar geti haslað sér völl í atvinnurekstri á sviði sjávarútvegs með sömu skilyrðum og um aðra gilda. Samt eru um allt land menn, sem engar gjafir hafa þegið af stjórnmálamönnum, en eru þó betur hæfir en flestir aðrir jarðar- búar til að sjá sér og sínum farborða með hinni aldagömlu atvinnu forfeðra sinna. Þá skortir hvorki til þess getu né þekkingu, né sögulegar og menningar- legar forsendur, og þar að auki er sú atvinna oft hin eina sem völ er á í heima- byggðum þeirra. Þeir eru nú skattpíndir langt umfram aðra, og með sérkenni- legri skattlagningu, því að hún fellur ekki undir það almenna skilgreiningar- atriði að skattur sé goldinn til samfélagsins. Hann rennur til forréttindahafanna persónulega. Alþýðumaðurinn, sem stunda vill fiskveiðar sér og sínum til fram- færis, verður annað hvort að kaupa af þeim, með greiðslu í einkavasa þeirra, heimild til þess fyrir miklu meira fé en hann hefur almennt yfir að ráða, þótt hraustur og duglegur sé, eða leigja af þeim veiðirétt með greiðslu til þeirra á meginhluta þess verðmætis sem hann dregur úr sjó. Ríkisvald þeirra hefur lík- lega hundruð manna í vinnu til að miðstýra kerfi þeirra, sjá til þess að alþýðu- maðurinn greiði þeim það sem þeir setja upp ef hann vill sækja sjó, og koma fram refsingum ef út af bregður. Sú hugmynd, að breyta þurfi stjómarskránni til samræmis við þessa tilhögun, er eins eðlileg og sjálfsögð og framast getur verið. Það, að gagnrýna hana út frá þeim forsendum einum, að sumum hafi hlotnast svo og svo mikið fé, er hins vegar ekki með öllu rökrænt að minni hyggju, nema þess sé þá gætt um leið, að það sem þeim hlotnast hlýtur óhjákvæmilega að koma frá öðrum. Það er nefnilega ekkert debet án kredits. Hópi manna var feng- in forréttindaaðstaða, sem kemur fram í því, að aðrir fá ekki að taka til höndum við mikilvægasta atvinnuveg Islendinga, nema þeir afhendi meðlimum hans til einkaeignar verulegan hluta þess arðs sem þeir megna að skapa með vinnu sinni. Það skyldi engan undra, að slík sérréttindi eru gróðavænlegri en svo að 374
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.