Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 99
2. Skrifstofa og framkvæmdastjórn
Engar breytingar voru gerðar á skrifstofuaðstöðu og framkvæmdastjórn fé-
lagsins á liðnu starfsári. Skrifstofa félagsins er að Álftamýri 9, Reykjavík og
leigir félagið húsnæðið af Lögmannafélagi íslands. Þá hefur félagið einnig að-
gang að ljósritunarvél og öðrum tækjum lögmannafélagsins. Lögfræðingafé-
lagið hefur starfsmann í hlutastarfi til að sjá um hin ýmsu framkvæmdaatriði
auk þess sem einn stjórnarmaður er framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga
svo sem fram hefur komið. Starfssvið framkvæmdastjóra félagsins er t.d. um-
sjón með útgáfu fréttabréfs félagsins, umsjón með innheimtu félagsgjalda og
ákriftargjalda Tímarits lögfræðinga, auglýsingasöfnun o.m.fl. Framkvæmda-
stjóri félagsins er á skrifstofu félagsins einn morgun í viku. Brynhildur Flóvenz
lögfræðingur hefur verið framkvæmastjóri félagsins frá byrjun árs 1995 og
þakkar stjómin henni gott samstarf á árinu.
Á starfsárinu voru greinar í Tímariti lögfræðinga flokkaðar og settar inn á
internetið. Nú geta menn leitað eftir greinum sem birst hafa í tímaritinu eftir
efnisflokkunr og gerir það alla leit mun fljótlegri og einfaldari en áður var.
Slóðin er www.adgengi.is.
3. Fræðafundir, málstofur og málþing
Starfsemi félagsins hefur á árinu verið með hefðbundnu sniði. Þannig hefur
félagið haldið fræðafundi og/eða nrálstofur í samvinnu við lagadeild Háskólans
að jafnaði einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, auk þess sem árlegt málþing
félagsins var haldið þann 1. október sl. Fræðafundir hafa ýmist verið haldnir
senr morgunverðarfundir, hádegisfundir eða kvöldfundir. Svo virðist sem mæt-
ing á morgun- eða hádegisverðarfundi sé betri en á kvöldfundina.
Þann 29. október 1998 kl. 20.30 var haldinn fundur á Hótel Loftleiðum um
lögfræðileg álitaefni um miðlægan gagnagrunn. Frummælendur voru Oddný
Mjöll Amardóttir hdl., Davíð Þór Björgvinsson prófessor og Viðar Már
Matthíasson prófessor.
Fundarmenn voru 25 talsins.
Þann 19. nóvember 1998 kl. 20.00 var haldinn fundur á Hótel Loftleiðum um
fmmvarp til laga um breytingar á skaðabótalögum. Frummælendur voru Viðar
Már Matthíasson prófessor og Gestur Jónsson hrl.
Fundarmenn voru 50 talsins.
Þann 26. nóvember 1998 var haldinn morgunverðarfundur á Hótel Sögu. Dr.
jur. Hanne Petersen, prófessor við Háskólann í Nuuk, flutti fyrirlestur um „Den
moderne rets autoritetstab- eller ret i kontekst”.
Fundarmenn voru 20 talsins.
379