Búnaðarrit - 01.01.1908, Síða 203
BÚNAÐARRIT.
199
heyskap, ef nokkur fengist starfsmaður þess. Hann
höfðu þeir engann, nerna einn heilsulítinn búfræðing.
Hvatti eg þá til að senda menn til búnaðarnáms, en
þeim óx í augum kostnaðurinn við það, og finst mér
sjálfsagt að Búnaðarsambandið styrki mann til nárns
hór eystra, með því t. d. að greiða honum ferðakostnað.
Það, sem fyrst liggur fyrir félaginu að gera, er, að
gangast fyrir framræzlu og áveitu, og þarf því ekki að
kaupa mikið af verkíærum í bráð, sem er heppilegt, því
að Öræfingar eru óvanir slikum kostnaði og ófúsir að
leggja hann á sig, en fúsir til að vinna jarðabætur, ef
ekki fyigja bein peningaútlát.
Tún eru í Öræfum mikið til slétt, svo að engin
nauðsyn er að slétta, að svo komnu, miklu meira um
að gera að túnin sóu girt, enda er grjót til girðinga
víðast hvar mjög auðfengið. En þegar girt er, verður
að taka tillit til þess, að mikið má stækka túnin all-
víðast, og allir ábúendur sömu jarðar, verða auðvitað
að girða í samlögum. í Öræfum eru aðeins 8 bæir —
og þó er sveitin talin 1 þingmannaleið milli bæja — en
búendur eru 26 og eru þannig margir búendur á hverri
jörð. Á Hnappavöllum og Hofi eru 7 búendur á hverri
jörðinni og í Svínafelli eru þeir 5. Hver búandi hefir
sinn ákveðna hluta af túninu, en engjarnar eru sam-
eign, þó þannig, að hver ábúandi hefir sinn ákveðna
teig af engjunum eitt ár í senn, og fær þá aftur sama
teiginn til afnota eftir jafnmörg ár — frá því er hann
hafði hann síðast — eins og ábúendur jarðarinnar eru
margir. Fyrirkomulagið er þannig hið sama og átt hefir
sór stað allvíðast í heiminum, á fyrstu barndómsárum
jarðræklarinnar, og hlítur auðvitað hór eins og annars-
staðar — að miklu leyti eða algerlega — að verða því
til fyrirstöðu, að nokkrar verulegar jarðabætur verði
gerðar á engjunum, nerna samvinnan og sanrtökin séu
hór þeim mun betri en annarsstaðar.
Engjarnar eru víðast góðar, en standa þó tit mik-