Búnaðarrit - 01.08.1916, Side 14
172
BÚNAÐARRIT
tóftina eða dreifa því á túnið. Enda er sigurhljómur í
rödd votheyskarlsins: „Yið skulum fara að slá, piltar,
mór er sama hvernig hann hamast úti“. Örugga vissan
gefur þrek og glatt hjarta við vinnuna, og sérhver
sprettur við orfið eða hrífuna lengir sumarið, blessað
sumarið. Hvernig sem haustið verður, er hægt að afla
nægs forða handa skepnunum. Yeturinn er velkominn,
þegar hann vill, og því spái eg, að ljótu köflunum í
búnaðarsögunni okkar muni fækka að sama skapi og
votheysgerðin verður almennari í landinu.
I’að niá búa til Menn hafa lengi verið í vafa um, hvort
volliey úr öllu vera mundi hægt að búa til vothey úr
nýslegriiii grasi. grasi, sem slegið væri á lélegum mýrar-
flóum, eins og víða verður að gera hér á
landi. Allir vita, sem þetta málefni hafa nokkuð kynt
sér, að vel má búa til afbragðsgott vothey (sæthey) úr
töðu, há og betra engjaheyi, en eg hefi eigi fengið á-
byggilegt fulinaðarsvar fyr en í fyrra haust með léttings
mýrarheyið.
í fyrra haust kom eg að Heggstöðum, þar sem hrepp-
stjórinn okkar hér i Andakil, Björn Lárusson, býr. Yar
þá taisvert af seinslegnu, sinubornu mýrarheyi á túninu*
i úrleystu votabands-baggasæti. Var sinan orðin svört
og heyið yflrleitt talsvert mikið skemt. Auk þess var
líka talsvert af móaheyi, einnig töluvert hrakið, og
nýlega slegin há í smáföngum, og var hún að mestu
óskemd. Ekki var annað sjáanlegt, en alt þetta hey
mundi innan skamms verða ónýtt, nema bráðlega þornaði.
En uppstytta kom aldrei á þessu hörmungarhausti, eins
og menn muna hér um sióðir.
Björn spyr mig nú, hvað til bragðs skuli taka. —
Búa til vothey úr öllu saman, var svarið — auðvitað.
Björn er framkvæmdamaður mikill og ekki lengi að víla
fyrir sér smámuni. Grefur hann nú 8 feta djúpa
sporöskjuiagaða gryfju, 8'X12', í hlaðvarpanum ofan í