Búnaðarrit - 01.08.1916, Síða 26
184
BÚNAÐARRIT
])vi að halda snúrunni fast. við hringlinuna, þar sem húo
fer út af plankaendunum (sbr. 1. mynd).
Þegar búið er að saga þenna planka eftir blýants-
strikunum, má nota hann sem fyrirmynd og sníða alla
hina 19 eftir honum. Þegar búið er að saga nokkra
planka, er rétt að leggja þá á línuna og prófa, hversu
vel þeir fylgja henni og falla saman, og laga þá strax
það er þurfa þykir.
Pvcrmál gryljunnar, fct I n n a nveggjamót Utanveggjamót
gcisli rt Ti * f 1$ « o : "7i ■— C'i planka- fjöldi geisli planka- lengd 2”XG” rt JJi T3 Is
10 5' 0" 3' 2" 20 5' 6" 3' 9” 20
11 5' 6” 3' 6" 20 6' 0" 4' 3" 20
12 6' 0" 3' 2" 24 6, 6" 3' 1" 24
13 6' 6" 3' 6" 24 7, 0" 4' 1" 24
14 7' 0" 3' 9" 24 7' 6" 4' 4" 24
15 7' 6" 3' 5" 28 8' 0" 4' 0" 23
16 8' 0" 3' 8" 28 8' 6" 4' 3" 28
17 8' 6" 3' 11" 28 9' 0" 4' 6" 28
18 9' 0" 4' 1" 28 9' 6" 4' 8" 28
19 9' 6" 4' 4" 28 10' 0" 4' 11" 28
20 10' 0" 4' 7" 28 10' 6" 5' 2" 28
Fyrirmyndarplankinn fyrir ytri mótunum er búinn
til á sama hátt, en þá þarf snúran að vera þeim mun
lengri, sem veggurinn er Jiafður þykkur, planJcinn lengri
(sbr. töfluna),og nú er söguð ein Jiringsneið innan úr planJc-
anum, en áður var sagað utan af honum (sbr. 2. og 3. mynd).
Þegar innri pJankarnir eru tilbúnir, eru 3' langir gólf-
borðsbútar negldir utan á ávala, hringsagaða flötinn, svo
8" standi upp af og 8" niður undan. Verða þá 16" á
milli plankahringanna. Með því að haía millibilin mis-
munandi á öðruhvoru móti, mætti hafa plankaendana
lengri en borðbútarnir eru negldir á. Á sama hátt eru