Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 79
BÚNAÐARRIT
237
Kenslunni í skólanum 1913—’14 og 1914—’15 var
hagað eins og að undanförnu, að því viðbættu, að frá
miðjum janúar fengu nemendur tilsögn í matartilbúningi
og brauðagerð.
Á námsskeiðinu, sem byrjaði 15. október 1915, voru
námsmeyjar 7.
Nokkur breyting á kenslunni var gerð, og er henni
nú þannig hagað:
1. Verkleg kensla: Smjörgerð og ostagerð, fitumæling,
vatnsmæling í smjörinu (Ostagerð er aukin að mikl-
um mun, með því búið er til mikið af ostum úr ó-
súrum áfum), innanhússstörf, ræsting, matartilbún-
ing, brauðagerð, kökubakstur o. fl.
2. Mjólkurfræði: Fyririestrar, samtalstímar og stílar.
3. Húsdýrafræði: Fyrirlestrar og stílar.
4. Heilsufræði: Fyrirlestrar, samtalstímar og stílar.
5. Samsetning fæðutegundanna: Fyrirlestrar.
6. Reikningur, skriflegur og munnlegur.
7. Réttritun.
8. Söngur.
Eftir áskorun Búnaðarfélags íslands fór eg eftirlits-
íerð til rjómabúanna síðastliðið sumar, eins og að undan-
íörnu. Ástandið á búunum var svipað og vant var.
Eg tók eftir því, að nokkur rjómabú höfðu hætt við
sýringu rjómans. 3 smjörbú voru búin að fá sér smjör-
vatnsvog, og vona eg að það komi þeim að góðu liði,
af því að vatnið í smjörinu var alstaðar of litið, þar sem
eg mældi það, frá 9—12°/«. Hæfilegt er 13—15°/o vatns
í smjöri.
Rjómann skoðaði eg frá öllum félagsmönnum bú-
anna, eins og vant er. Færri bændur sendu rjóma, sem
fékk að eins 6—8 stig, en íleiri fengu 10—11 stig.
Félagsmenn með 12 stig flestir þeir sömu og áður hafa
verið, að nokkrum mönnum viðbættum.