Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 83
BÚNAÐARRIT
241
því að e£ verksmiðjan hefði verið lögð niður, þá hefði
verðið orðið hærra en áður, og svo mikill og sterkur
var félagsskapurinn, að eftir 1 ár var verksmiðjan orðin
of lftil; svo mikil var eftirspurnin.
Fleiri dæmi mætti telja, en þetta nægir til að sýna,
að félagsskapurinn er það eina, sem framtíð bænda verður
að byggjast á.
Nokkrar bústýrur kvörtuðu undan því við mig, að
þær fengi svo iágt kaup, ekki hærra en alment kaupa-
konukaup. Að þetta er ekki rétt hugsað af félagsstjórn-
unum liggur í augum uppi. Bústýrustöðunni fylgir mikil
ábyrgð, og þó að vinnan sjálf sé ekki erfið, þá eiga þær
að fá borgaða ábyrgðina, sem á þeim hvílir. Og svo er
hitt, að með þessu lagi draga góðu bústýrurnar sig í
hlé, en aðrar yngri og minna reyndar koma í staðinn.
Sömuleiðis mun það vera skökk skoðun hjá sumum, að
hafa bústýruskifti bara af því, að aðrar bjóða sig fyrir
svolítið lægra kaup en hinar.
Tvö af beztu smjörbúunum okkar vantar enn þá
gott frárensli fyrir skolpið, sem er mjög afleitt, af því
að skolpið sígur niður í jarðveginn rétt fyrir utan skál-
ann. Lyktina af því, sem er mjög fúl, leggur um alt
og inn í skálann, og smjörið nýtur þar góðs af!!
Hvítárvöllum í janúar 1916.
H. Orönféldt.
16