Dvöl - 01.07.1940, Side 13

Dvöl - 01.07.1940, Side 13
D VÖL 171 allra hinna gauzku kvenna. Hetjur lyftu hornum sínum. Hyllt var ég af skáldum flestum, — en aðeins náði ástum mínum einn af jarlsins hallar-gestum. Og síðar í sama kvæði: Eldar kvikna, — eldar braka. — Aldrei gleymast fyrstu kvöldin. — En sú náð, að njóta og vaka nakin bak við rekkjutjöldin. Hvert hans orð var ilmi blandið. — Allt var gott, sem Hörður gerði. — Svo yfirgaf ég Gautalandið, gekk til skips — og fylgdi Herði. Mærin unga, sem gengur léttstíg um hina fögru, skógiklæddu eyju, hún, sem hefir hlustað á öll hin fögru ástarorð hinna gauzku sveina, án þess að hrífast, hún, sem á sér glæsilega framtíð í frjósömu, vel yrktu landi; jarlsdóttirin fagra, sem hamingjan brosir við, hún velur lífsbraut sína í einu vetfangi — og fylgir Herði. Það er ástin, kærleik- urinn, sterkasta aflið á jörðunni, sem ræður. Hinn frumstæði kær- leikur, ástin milli manns og konu, og ekkert annað, hefði getað fengið hana til að stíga svo stórt spor. Líkt þessu hafa konur á öllum öldum breytt, og líkt þessu breyta þær enn þann dag í dag, ef þær eru sjálfráðar gerða sinna og hafa ekki hjarta sitt að leikfangi. — Ástin ræður ætíð úrslitunum hjá kon- unni, ef hún er eðli sínu samkvæm. Hún á yfirleitt ekki hina hagsýnu íhygli karlmannsins, sem metur og vegur og þvingar tilfinningar sínar undir ok skynseminnar. Kærleikur- inn er sterkasti þáttur í skaphöfn konunnar, og ef hann er slitinn, þá er lífið henni lítilsvirði. Innarlega í Hvalfirði er lítill hólmi. Það er þessi hólmi, sem verður dvalarstaður hinnar gauzku meyjar norður á íslandi. Hvalfjörð- ur er fagur á kyrru vorkvöldi. Úr hlíðinni fyrir utan Þyril blasir hann við, þessi litli hólmi. Hann sýnist mjög skammt frá landi, en vegalengdin mun þó vera um 2000 metrar. Allstórt nes gengur út í fjörðinn undan Þyrli og er þaðan skemmra í hólmann. Nú heitir hann Geirshólmi, en í minningum vorum, er hann kenndur við Helgu og Hörð. Ég ætla ekki að rekja alla þá sögu ógæfu og ættarvíga, sem urðu þess valdandi, að Hörður varð að hrekj- ast út í þenna litla hólma, með sína göfugu, gauzku brúði. Saga Harðar er ein mesta harmsaga forn- aldarinnar og mun vera sönn í aðal- dráttum. Helga, þessi stórláta, göf- uga kona, er eftir fárra ára dvöl á íslandi, hrakin í útlegð með Herði, manni sínum. Hún fylgir honum í útlegðina, trygglynd og tápmikil, eins og hún fylgdi honum í hrifn- ingu ástarinnar yfir hið breiða haf til íslandsstranda. Ekki er annarra kvenna getið í hólmanum, en 80 manns var þar, þegar flest var. Það var samsafn af mönnum, sem höfðu orðið brotlegir við hina ungu, ís- lenzku löggjöf. Margt hraustra og göfugra drengja, en einnig margt spilltra spellvirkja. Fátt er sagt af æfi Helgu í hólm- anum, en geta má nærri, hvemig

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.