Dvöl - 01.07.1940, Side 23

Dvöl - 01.07.1940, Side 23
DVÖL 181 Jaiiko litli Eltir Xlenryk Sienkiewie* Egill Bjarnason þýddi Veikur og vesældarlegur kom hann í heiminn. Nágrannarnir, sem safnazt höfðu umhverfis rúm- iö, hristu höfuðið yfir móðurinni og barninu. Kona járnsmiðsins, sem var reyndust þeirra allra, tók að hugga sængurkonuna á sinn hátt. „Þú verður að liggja alveg graf- kyrr. Ég skal kveikja á bless- uðu kertinu. Þessu er nú senn öllu lokið, vesalingurinn. Þú ættir að fara að búa þig undir annað líf. Það væri nær, að einhver hlypi til prestsins, til þess að biðja hann um sakramentið.“ „Og svo verður að skira bless- aðan ungann undir eins,“ sagði einhver. „Þið getið verið viss um, að hann lifir ekki þangað til prest- urinn kemur, svo skemmtilegt sem það þó væri að hafa heiðna sál á sveimi hér á meðal okkar.“ Kona járnsmiðsins kveikti á kertinu, tók barnið, hellti yfir það vígðu vatni, þar til það deplaði augnalokunum. Þá mælti hún fram þessi orð: „í nafni föðurins, sonarins og hins heilaga anda skíri ég þig Jan.“ — Og svo bætti hún við þessum orðum, sem hún mundi óljóst úr gamalli jarðarfararbæn: „Far þú í friði, kristna sál, til þess staðar, sem þú komst frá. Amen.“ En hin kristna sál hafði ekki minnstu löngun til þess að kveðja þenna heim. Þvert á móti æpti og spriklaði barnið af öllum kröft- um. En konunum fundust þessi mjóu, veiku hljóð eins og mjálm í ketti. Það hafði verið sent eftir prest- inum. Hann kom, þjónustaði kon- una og fór síðan. En í stað þess að deyja, fór móðurinni dagbatnandi, og hún var farin að vinna eftir viku. Líf drengsins hékk lengi á þræði. Hann sást varla anda. En er hann varð fjögurra ára gamall, galaði haninn í þrjár stundir samfleytt uppi á þakinu. Góður fyrirboði, seg- ir pólsk þjóðtrú — og svo fór hon- um smámsaman fram, og einhvern veginn varð hann tíu ára. En alltaf var hann magur og lingerður, renglulega vaxinn og kinnfiskasoginn. Hárið var skol- grátt og hékk niður yfir stór, út- stæð augun, sem störðu út í bláinn eins og þau sæu einhverja leynda hluti. Á veturna hnipraði hann sig saman bak við ofninn og grét hljóðlega af kulda og þó eigi sjaldnar af hungri, ef mamma

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.