Valsblaðið - 01.05.2001, Page 7
Það er langt um liðið síðan Guðni Bergs-
son skoraði 10 mörk í sigurleik Vals
gegn Leikni (13:1) í 3. flokki í knatt-
spymu. Þá var hann hrokkinhærður sent-
er með léttleikann að leiðarljósi og
hreint ótrúlega sprettharður. Hann er
reyndar enn hrokkinhærður húmoristi og
án efa meðal fljótustu varnarmanna
heims. En í dag leikur Guðni sem aftasti
maður í vörn í fimasterku liði Bolton
sem hefur komið á óvart í ensku úrvals-
deildinni í vetur - og drengurinn skorar
enn. Það fer ekki á milli mála að Guðni
er kóngurinn í Bolton, fyrirliði, „grand
old man“ og nýtur gífurlegrar virðingar.
Hann leiddi liðið til sigurs í 1. deild á
síðustu leiktíð, skoraði yfir 10 mörk og
hlaut öll verðlaun sem kosið var um hjá
félaginu, meðal stuðningsmanna, leik-
Eitir Þorgrím Þráinsson
Bogard-lúkkið hans Guðna klikkar aidrei þegar hann er kominn í sparifötin. Elín Kon-
ráðsdóttir minnir sömuleiðis á Hollywoodstjörnu.
Vais- og Boltonfjöiskyldan (stuðnings-
menn Víkings) á Shellmótinu í Eyjum
sumarið 2001. Þar har iið Bergs (Yngra
lið ó.flokks Víkings) sigur út hýtum.
manna og blaðamanna. Það segir sína
sögu karakterinn.
Þótt Guðni sé orðinn 36 ára eru menn
sammála um að hann hafi aldrei leikið
betur. íslenskir sjónvarpsáhorfendur hafa
getað fylgst með því hvemig Guðni hef-
ur verið með fremstu framlínumenn
heims í vasanum, stungið þá af á sprett-
inum, lesið marga þeirra eins og opna
bók og verið með staðsetningamar á
hreinu. Enda býr ekki lítil reynsla í
„antflópunni" eins og Guðni var kallaður
á glöðum stundum á velgengnisárum
Vals á 9. áratugnum. Það var ekki amar-
legt að leika með Guðna í vöminni því ef
maður gerði mistök (sem heyrði reyndar
til tíðinda!) „sópaði" hann vandræðalaust
sem aftasti maður. Og þá átti hann það til
að stinga sér leiftursnöggt fram á við,
skapa sér eða öðrum færi, og hann náði
alltaf að pota einu og einu marki, sem
eru eflaust þrumufleygar í minningunni!
Þótt íslenska landsliðið hafi eleki haft
not fyrir krafta Guðna síðustu árin, eftir
að honum var nánast sparkað úr landslið-
inu sem fyrirliða, hefur antílópan
blómstrað með Bolton. Um miðbik nóv-
ember var hann valinn í Evrópuúrval
vikunnar og fréttamenn ytra hafa nefnt
hann til sögunnar sem besta vamarmann
ensku úrvalsdeildarinnar það sem af er
keppnistímabilinu. íþróttafréttamenn í
Englandi hafa ekki átt orð yfir það að
þessi leiðtogi skuli ekki vera nógu góður
fyrir íslenska landsliðið. En það er önnur
saga - sem verður líklega aldrei skráð.
Valsblaðið náði tali af Guðna þegar
hann gerði sér dagamun á íslandi í nóv-
ember og hóaði saman nokkrum félögum
úr síðasta Islandsmeistaraliði Vals í
knattspymu - liðinu 1987. Gleðskapur-
inn hefur greinilega haft góð áhrif á
Guðna því hann skoraði í næsta leik,
2001 Valsblaöiö
5