Valsblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 20
deildina 2001 í nóvember 2000, var ekki
hár. Nokkrir ungir leikmenn sýndu þó
strax að mikils mátti af þeim vænta, en
það vantaði góða reynslubolta með sem
myndað gætu kjölfestu í liðinu. Þó hafði
Þórður Þórðarson, markvörður, komið til
Vals frá Norrköping í Svíþjóð og var
góður liðsstyrkur. Það var og hvalreki
þegar Sigurbjörn Hreiðarsson sneri aftur
til Vals frá Svíþjóð. Hann átti ekki
minnstan þátt í því, ásamt Kristni Lárus-
syni fyrirliða, sem var þó talsvert frá
vegna meiðsla, að í hópnum skapaðist
góð stemmning og árangur í vetrarmót-
unum var vel viðunandi.
Vetnan- oy vormótin
Val gekk vel í Islandsmótinu innanhúss,
komst alla leið í úrslitaleikinn en tapaði
þar fyrir Þór. Sama var uppi á teningun-
um í Reykjavíkurmótinu utanhúss, góð
frammistaða, m.a. sigur á KR og úrslita-
leikur gegn Fylki, sem tapaðist eftir
framlengingu og vítaspyrnukeppni. Það
gekk ekki eins vel í Deildarbikarkeppni
KSI, aðeins 6. sætið (af 8) í riðlinum, en
þó vantaði aðeins einn sigur til að ná 4.
sætinu og þar með áframhaldandi keppni
Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir lék með
hinum sigursœla 2. flokki sem vann
ALLT. Jóhanna hefur einnig getið sér
gott orð sem þjálfari yngstu iðkenda Vals
í stúlknaflokkum. (Mynd: Þ.Ó.)
í mótinu. Tveir góðir sigrar unnust, gegn
IBV og IBK, en töp fyrir minni spá-
mönnum eins og IR og Leiftri komu í
veg fyrir framhald.
Frammistaðan í Deildarbikarkeppninni
og Reykjavíkurmótinu færði mönnum
heim sannindi um að þótt Valsliðið væri
að mestu skipað ungum og lítt reyndum
leikmönnum var það vel skipulagt og
gæti á góðum degi staðið í hvaða liði
sem væri. En breiddin var ekki mikil og
liðið því brothætt, þannig að markmiðið
var skýrt; að halda sæti í efstu deild. Allt
annað yrði bónus.
Sumarið 2001
Barátta sumarsins fór vel af stað. Valslið-
ið kom verulega á óvart fyrri hluta móts-
ins en liðinu hafði verið spáð falli í ár-
legri atkvæðagreiðslu aðstandenda fé-
laga í Símadeildinni. Byrjunin kom for-
ráðamönnum Valsliðsins reyndar ekki
svo mjög á óvart, því leikmannahópurinn
var vel skipaður þegar allir voru á staðn-
um og allir voru heilir. Að 10 umferðum
loknum var Valur í 3. sæti Símadeildar-
innar með 17 stig. Þá töldu ýmsir að Val-
ur ætti möguleika á að blanda sér í topp-
Meistaraflokkur Vals í knattspyrnu sumarið 2001. Aftasta röð frá vinstri: Friðrik Ellert Jónsson sjúkraþjálfari, Ejuh Purisevic
þjálfari, Guðni Rúnar Helgason, Martin Gustavssson, Armann Smári Björnsson, Stefán Þórðarson, Zoran Stocic, Hjalti Þór
Vignisson, Magni Blöndal aðstoðarþjálfari og Örn Erlingsson. Miðröð frá vinstri: Grímur Sœmundsen, formaður knattspyrnu-
deildar, Alister McMillan, Dean Holden, Halldór Hilmisson, Bexim Haxhiajdini, Sigurbjörn Hreiðarsson, Jakob Jónarðsson, Gunnar
Örn Jónsson, Elvar Guðjónsson, Jón Gunnar Gunnarsson, Matthías Guðmundsson og Hörður Hilmarsson formaður meistara-
flokksráðs. Fremsta röð frá vinstri: Pálmar Hreinsson, Sigurður Sœberg Þorsteinsson, Bergur Bergsson, Hjörvar Hafliðason,
Kristinn Lárusson fyrirliði, Þórður Þórðarson, Bjarni Ólafur Eiríksson og Geir Brynjólfsson. A myndina vantar Fikret Alomerovic,
Helga Má Jónsson og Grím Garðarsson.
18
Valsblaðið 2001