Valsblaðið - 01.05.2001, Síða 63

Valsblaðið - 01.05.2001, Síða 63
Eftir Hauk R. Magnússon Þorlákur Arnason ep kominn að Hlíðarenda a ny - sem þjálfapi meistapaflokks hapla í knatfspypnu Þorlákur Árnason hefur fengið það vandasama en áhugaverða hlutverk að móta nýtt knattspyrnulið úr ungum og efnilegum Valsmönnum. (Mynd Þ.Þ.) Þorlákur Ámason var ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í knattspymu sl. haust og er óhætt að segja að sú ráðning hafi fallið í góðan jarðveg hjá Val. Þor- lákur gerði samning til þriggja ára og em miklar vonir bundnar við að hann nái að hefja Val aftur til vegs og virðingar í knattspymunni með sitt efnilega lið. Þor- lákur þekkir vel til á Hlíðarenda enda þjálfaði hann yngri flokka félagsins um fjögurra ára skeið. Undir hans stjóm varð 2. flokkur karla tvöfaldur meistari fyrir fjórum árum en auk þess tók hann við þjálfun meistaraflokks á miðju tímabili það ár, aðeins 28 ára gamall. Þorlákur hefur undanfarið þjálfað 2. flokk hjá ÍA og skilaði tveimur titlum í hús þar núna í haust. En skyldi það ekki vera stórt stökk að fara úr þjálfun yngri flokka í að þjálfa meistaraflokk? „Það finnst mér ekki,“ segir hann. ,,Ég hef alltaf litið svo á að það skipti ekki máli hvaða flokk maður þjálfar. Ég lít á mig sem kennara og ég vil kenna leikmönnum." Hvernig finnst þér að vera kominn aftur á Hlíðarenda? „Það er ánægjulegt og öðruvísi því hér hafa orðið miklar breytingar á síðustu ámm. Liðið er spennandi, ungt og skemmtilegt en þrátt fyrir að vera reynslulaust eru strákamir hæfileikaríkir. Ég hlakka til að takast á við þetta verk- efni.“ Hvernig metur þú möguleikana á að liðið komist beint upp? .,Við erum með nógu sterkan hóp til að komast beint upp. Liðið á eftir að taka miklum framförum og starfið í vetur er þýðingarmikið. Sjö leikmenn hafa farið frá félaginu en að sama skapi hafa komið strákar sem voru hjá okkur áður. Stefnan er sú að byggja á yngri leikmönnum sem eru allt Valsmenn og þeir tala sama tungumál og ég. Sigurbjöm Hreiðarsson, sem verður fyrirliði, er orðinn elsti mað- urinn í liðinu og samsetning þess er breytt. Meðalaldurinn hefur lækkað um 5 til 6 ár í haust en hæfileikamir era allir til staðar. Ég kem til með að bera meiri ábyrgð sem þjálfari og í raun sem leið- togi í liðinu því það hefur ekki mikla reynslu." í hverju mun styrkleiki Vals helst felast? „Tæknilega hliðin er í lagi hjá þessum strákum og það er sterk samkennd innan liðsins. Það ríkir mikil eining meðal þeirra sem starfa í deildinni, hvort sem það eru leikmenn, þjálfarar eða stjómar- menn. Allir hafa sama markmið. Ég tel að þetta muni skila árangri með tíman- um.“ Hvernig gekk heimsóknin til Bolton? „Hún gekk mjög vel. Strákamir (Matthí- as Guðmundsson og Ármann Smári Bjömsson) voru ánægðir. Þeir æfðu með aðalliðinu en ekki varaliðinu eins og oft þegar leikmenn fara til erlendra liða. Fyrir mig sem þjálfara var þetta mjög já- kvætt. Englendingamir hafa tekið mikl- um framföram á undanförnum áram í allri umgjörð í kringum þjálfunina. Þeir era famir að gefa þessum litlu atriðum í kringum fótboltann meiri gaum en áður, eins og mataræði, sálfræði og aðstöðu. Bolton er lítill klúbbur sem gerir sér grein fyrir þeim möguleikum sem bjóð- ast út frá þeirra stærð og eru ekki að reyna að vera eins og Liverpool og Manchester United. Þeir setja sér skýr markmið og við getum lært mikið af því.“ Finnur þú fyrir þolinmæði hjá félaginu vegna þess uppbyggingastarfs sem þú ert í raun að hefja? „Það ríkir mikil sátt um það sem á að gera. Menn ætla ekki að gera sömu mis- tökin aftur, að treysta ekki á innviði fé- lagsins. Þolinmæðin birtist þannig að menn era sammála um að byggja á því sem við höfum og vera ekki að leita að einhverju öðra. Ég held að þetta eigi við um stuðningsmennina líka. Þeir vita að það tekur tvö til þrjú ár að byggja upp mjög gott lið aftur.“ 2001 Valsblaðið 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.