Valsblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 66
Framtíðarfólk
Fæðingardagur og ár: 22. nóvember 1984.
Nám: Nemi við Fjölbrautaskólann við Armúla.
Hvað ætlarðu að verða: Það er óákveðið. Stefni á að klára
stúdent og sjá svo hvert leiðir liggja.
Hvað gætirðu aldrei hugsað þér að verða: Kind.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Er Bogamaður og rísandi
stjama með bikar í tunglmyrkva að vori.
Fyrsta augnabiikið sem þú manst eftir: Þegar ég gleymdi
Orra bangsanum mínum í bankanum og grét í heila nótt.
Hvað spriklaðir þú á æskuárum: Það var nú aðallega fótbolt-
inn sem maður var að sprikla í fyrir norðan. Svo eyddi maður
ófáum kvöldum við að dorga.
Af hverju handbolti: Það er skemmtilegasta íþróttin.
Af hverju í Val: Góður klúbbur. Ég var með 2-3 klúbba í huga
þegar ég kom suður, en mér leist best á þá sem voru að þjálfa og
stjóma í Val, og ákvað að fara þangað. Sé ekki eftir því.
Er einhver frægur í ættinni: Bróðir minn Hrannar var frétta-
maður í nokkur ár, annars er það upptalið.
Eftirminnilegast úr boitanum: Álaborgarmeistari 1998.
Skemmtilegustu mistök: Skoraði sjálfsmark á Álaborgarleik-
unum í Danmörku. Þá var ég spilandi markvörður með Völs-
ung.
Fyndnasta atvik: Ég hjólaði einu sinni ofan í
skurð og brákaði á mér hendina.
Hvað hlægir þig í sturtu: Rakaðir
neðripartar.
Kostir: Hreinskilni.
Gallar: Það er mjög auðvelt að
pirra mig og svo er táfýlan
býsna slæm.
Athyglisverðastur í meist-
araflokki: Þeir Gústi og
Siggi eru nú
athyglisverðastir.
Hver á Ijótasta bílinn: Ég held að það sé Suzuki Swiftinn hans
Magga.
Hvað lýsir þínum húmor best: Aulabrandarar.
Fleygustu orð: „Strákar, er einhver með síða sokka“?
Mottó: Lifa daginn í dag eins og það sé enginn morgundagur.
Fyrirmynd í boltanum: Roland Eradze.
Leyndasti draumur: Ætli það sé ekki að spila sem atvinnu-
maður.
Kærasta: Sú staða er laus.
Við hvaða aðstæður líður þér best: Undir sæng á Adamsklæð-
unum.
Hvaða setningu notarðu oftast: Koma svo... Vöm!!!
Hvað er það fallegasta sem hefur verið sagt við þig: Að ég
væri með fallegan makka.
FuIIkomið laugardagskvöld: Vera í góðra vina hópi, imbinn
og nóg að éta.
Hvaða flík þykir þér vænst um: Schmeichel-treyjuna mína,
búinn að spila nánast alla leiki síðustu 2 ár í henni innanundir.
Besti söngvari: Kurt Cobain.
Besta bíómynd: Full Metal Jacket.
Besta bók: Tár, bros og takkaskór.
Besta lag: Detroit Rock City með Kiss.
Eftir hverju sérðu mest:
Þegar ég klippti síða hárið í burtu.
Ef þú yrðir að vera einhver annar: Þá
myndi ég vera Hugh Hefner.
Ef þú værir alvaldur í Val: Myndi
ég láta gera stóra styttu af mér og
planta henni á góðum stað.