Valsblaðið - 01.05.2001, Page 79
Framtíðarfólk
Frægari
Bjarni Ólafur Eiríksson meistaraflokki í knattspyrnu
Fæðingardagur og ár: 28. mars 1982.
Nám: Grunnskólapróf og eilítið í stúdent.
Hvað ætlarðu að verða: Professional football player,
það er að segja atvinnumaður í knattspymu.
Hvað gætirðu aldrei hugsað þér að verða: Skeinari á elliheimili.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Ég sé tvo titla. Sigur í 1. deild og bikarmeistaratitil.
Fyrsta augnablikið sem þú manst eftir: Þegar ég var í vöggu og sá fyrsta knöttinn renna hjá.
Af hverju fótbolti: Maður hefur aldrei getað neitt í öðru þannig að fótboltinn lá beinast við.
Er einhver frægur í ættinni: Já, það eru nokkrir nafntogaðir einstaklingar
í ættinni en þeir eru allir í grjótinu.
Eftirminnilegast úr boitanum: Að sigra í ungir-gamlir úti í Portúgal þegar mikið var lagt undir.
Að sjá Ejub, Jónsa og fleiri snillinga labba heim af æfingasvæðinu var brilljant.
Ein setning eftir sumarið 2001: Aldrei aftur, aldrei aftur og síðast en ekki síst ALDREIAFTUR
Skemmtilegustu mistök: Þegar ég gleymdi að fara í sundskýluna en hélt á henni
en hélt að ég væri með sundgleraugun í hendinni.
Fyndnasta atvik: Að sjá ónefndan aðila í meistaraflokki
setja teygju utan um „settið“ og lærið fyrir leik vegna stærðar.
Stærsta stundin: Þegar ég fæddist.
Hvað hlægir þig í sturtu: Bakið á Matta.
Kostir: Gríðarlega stundvís.
Gallar: Alger letingi.
Athyglisverðastur í meistaraflokki: Sigurbjöm Hreiðarsson.
Hver á ljótasta bílinn: Primeran hans
Benna Hinriks er alveg hræðileg.
Hvað lýsir þínum húmor best: Glettni.
Fleygustu orð: Maður verður af aurum api.
Mottó: Að verða frægari en páfínn.
Fyrirmynd í boltanum: Frank Deboer.
Leyndasti draumur: Fimmfaldur Víkingalottó
(en ég verð ekki api)
Við hvaða aðstæður líður þér best: Þegar ég horfi á
United spila og vinna.
Hvaða setningu notarðu oftast: Ég fer ekkert ofan af því.
Hvað er það fallegasta sem hefur verið sagt við þig:
Það sem Ejub sagði við mig áður en ég spilaði
minn fyrsta meistaraflokksleik er ógleymanlegt.
FuIIkomið laugardagskvöld: Mjólk, Fífa og Auðarstrætið.
Hvaða flík þykir þér vænst um: Valsbúninginn.
Besti söngvari: Hjörvar Hafliðason.
Sá hann syngja í Karokee og gleymi því aldrei.
Besta bíómynd: Með allt á hreinu.
Besta bók: Biblían.
Besta lag: Valslagið.
Eftir hverju sérðu mest: Að hafa byrjað að vinna á
bílaþvottastöð í kringum jólin. Versti tími sem ég hef lifað.
Ef þú yrðir að vera einhver annar: Þá myndi ég sennilega
vilja vera Siggi litli Sörensen því hann er svo rosalega sætur.
Ef þú værir alvaldur í Val: Þá myndi ég setja Benna í senterinn.
2001 Valsblaðið