Valsblaðið - 01.05.2001, Síða 83
Ármann Smári Bjömsson, markahæsti leikmaður Vals
í sumar, og Matthías Guðmundsson, einn af okkar
efnilegustu piltum, dvöldu í vikutíma hjá enska úr-
valsdeildarliðinu Bolton á dögunum. Þorlákur Áma-
son þjálfari var með í för. Heimsókn þremenninganna
er hluti af því samkomulagi sem Bolton og Valur hafa
gert sín á milli en það gæti aukið möguleika Vals-
manna á atvinnumennsku í framtíðinni.
„Þetta var mjög góð ferð,“ sagði Ármann Smári í
samtali við Valsblaðið. „Við æfðum allan tímann með
aðalliðinu og spiluðum æfingaleik. „Ég bjóst reyndar
við meiri hörku á æfingunum en Matta fannst harkan
hins vegar töluverð. Mér skilst að forráðamenn
Bolton hafi verið ánægðir með mína frammistöðu. Ég
hef áður dvalið hjá norsku liði þannig að fátt kom mér
svo sem á óvart við það að æfa með sterku, erlendu
liði. Við fengum höfðinglegar móttökur og Guðni
Bergsson var okkur innan handar með allt. Hann nýt-
ur mikillar virðingar hjá Bolton en er með báða fætur
á jörðinni. Þess vegna er hann að ná frábærum ár-
angri.
Já, það er ekkert launungarmál að draumurinn er að
spila með góðu erlendu liði. En maður má samt ekki
vera skrefi á undan sjálfum sér. Aðalatriðið er að
standa sig vel með Val og leggja sig 100% fram. I
kjölfarið mun maður uppskera. Það gerist ekkert af
sjálfu sér. Mér líst mjög vel á hópinn hjá Val núna.
Menn ætla virkilega að leggja sig fram og mér finnst
ákveðin hugarfarsbreyting hafa átt sér stað með til-
komu Þorláks þjálfara."
hörku!
Ármann Smári, Matti oy Þorlákur dvöldu hjá Bolton
Ármann Smári Björnsson og Kristín Ýr Bjarnadóttir voru markahœstu leik-
menn meistaraflokks í sumar og fengu „ gullskó “ sem Búnaðarbankinn við
Hlemm gaf. (Mynd: Þ.O.)
Starfsmenn Vals
Brynja Hilmarsdóttir er skrifstofustjóri
Vals. Hún er fædd 6. september 1966 og
hefur starfað við bókahald frá 1986.
Brynja varð stúdent frá Versló '86 og
hefur lokið námi í rekstrar- og viðskipta-
fræði frá endurmenntunarstofnun HI.
Brynja er gift Þorbimi Sigurðssyni, sölu-
manni hjá Gísla Jónssyni ehf.. Böm þeira
em Hilmar Öm 11 ára og Eyrún Inga 1
árs. Brynja æfði handbolta með Val þeg-
ar hún var 11 ára.
Sveinn Stefánsson er Reykvíkingur,
fæddur árið 1969. Hann er rekstrarfræð-
ingur að mennt úr Tækniskóla Islands og
tók við starfi framkvæmdastjóra Knatt-
spymufélagsins Vals í júlí s.l. Sveinn er
kvæntur Dagnýju Amþórsdóttur rekstrar-
fræðingi, starfsmanni hjá Pharmaco.
Böm þeirra eru Sara Sif 11 ára og Sveinn
Aron 8 ára. Sveinn keppti fyrir Val á sín-
um yngri ámm í fótbolta.
Sveinn Stefánsson framkvœmdastjóri og Brynja Hilmarsdóttir skrifstofustjóri
2001 Valsblaðið
81