Valsblaðið - 01.05.2001, Page 89
Sigurður Úlafsson
Heiðursfélagi 3. júní 1977
Hinn sívakandi félagi, skyldurækinn, athugull og
athafnasamur. Vann ómetanlegt starf við uppbyggingu
Hlíðarenda. Snjall knattspymu- og handknattleiksmaður,
margfaldur íslandsmeistari með Val og landsliðsmaður.
FormaðurVals 1946.
Úlfar Þórðarson
Heiðursfélagi 11. maí 1981
Athafnamaðurinn bjartsýni, sem á vissan hátt braut
blað í sögu Vals. Maðurinn sem með elju og atorku hreif
með sér unga menn til átaka fyrir Val. Formaður Vals á
þeim ámm er hafist var handa við gerð malar- og grasvallar.
Formaður íþróttahúsanefndar frá 1954 og fram yfir 1960,
en á þeim árum var eldra íþróttahús Vals byggt.
Orðstýr Ulfars frá þeim tíma mun aldrei deyja.
FormaðurVals 1947-1949.
Sveinn Zoega
Heiðursfélagi 11. maí 1981
Gerðist Valsmaður ungur að árum og hóf þá strax að keppa.
Helgaði sig síðar stjómunarstörfum í öllum myndum. Meðal ötul-
ustu forystumanna Vals, formaður fulltrúaráðsins um lengri tíma,
fulltrúi Vals í KRR og formaður þess lengi, stjómarmaður í KSÍ.
Formaður Vals 1939-1940, 1943, 1957-1961.
Heiðursfélagi 11. maí 1991
Leikinn knattspymumaður og í fyrsta íslandsmeistaraliði
Vals. Var í forystusveit þeirra sem stóðu að kaupunum
á Hlíðarenda. Síðar sannur elju- og áhugamaður um
framkvæmdir á Hlíðarenda og var um langt skeið í forystu.
Jón Eiríksson
Heiðursfélagi 11. maí 1991
Einn ungu mannanna, sem brutu blað í sögu félagsins árið 1930
með fyrsta íslandsmeistaratitlinum í knattspymu. Hann tók að sér
formennsku í félaginu aðeins tvítugur að aldri auk þess að keppa í
knattspymu. I formannstíð hans fór Valur í fyrstu keppnisferðina
til útlanda. Hann var einn af stofnendum fulltrúaráðs Vals.
Fulltrúi Vals í stjóm KSÍ og ÍBR og trúnaðarlæknir IBR um tutt-
ugu ára skeið.
FormaðurVals 1931.
Nrður Þorkelsson
Heiðursfélagi 11. maí 1996
Gekk komungur í Val, keppnismaður í knattspymu en þó fyrst
og fremst í handknattleik. Gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum
fyrir Val, átti m.a. sæti í aðalstjóm í rúma tvo áratugi. I
formannstíð hans hófst körfuknattleikur hjá Val. Formaður
framkvæmdanefndar um gerð grasvallar á Hlíðarenda. Farsæll
og eftirsóttur stjómarmaður innan sem utan Vals, m.a. fyrsti for-
maður fslenskrar getspár og sat í framkvæmdastjóm ÍSÍ um árabil.
FormaðurVals 1970-1974.
2001 Valsblaðið
87