Valsblaðið - 01.05.2001, Side 95
eftir Anthony Karl Gregory
Gömul spörk
Annall Old Boys 2001
toku sig upp!
Old-boys lið Vals sem lék gegn Reyni Sandgerði í sumar: Aftari röð frá vinstri.
Kolbeinn Reginsson, Einar Páll Tómasson, Sigtryggur Árni Ólafsson, Sœvar Jónsson,
Anthony Karl Gregoiy einvaldur, fyrirliði og vítaskytta og Steinar Aðalbjörnsson.
Neðri röð frá vinstri: Böðvar Bergsson, Flosi Helgason, ívar Egilsson vinur Flosa,
Ólafur K. Ólafs, Arnaldur Loftsson og Sigurjón Ragnar.
Sumarið 2001 var eftirminnilegt fyrir
Old boys þar sem árangur flokksins var
óaðfmnanlegur að öllu leyti fyrir - utan
einn leik og það var leikurinn sem skipti
öllu máli! Eftir að hafa borið sigur úr
býtum í öllum leikjum riðilsins nokkuð
örugglega tapaðist leikurinn í undanúr-
slitum og Valur féll úr keppni. Vanmat er
talinn helsta ástæða tapsins (gegn fs-
landsmeisturum Fram 1986) en komið
verður í veg fyrir það fyrir sumarið
2002.
Arangur flokksins var ekki lengi að
spyrjast út á meðal aðdáenda Vals sem
tóku að flykkjast á völlinn eftir því sem
leið á sumarið. Stemningin var slík að
líkja mátti við deildarleik á Anfield Road
í Liverpool. Eini munurinn var sá að
hrópin og köllinn fóru fram á íslensku!
„Hvar hafa þessir leikmenn haldið sig,“
heyrðist oft frá grátklökkum gamal-
mennum sem höfðu lifað tímanna tvenna
og mundu hvenær Valur varð síðast ís-
landsmeistari karla í mfl. Ekki hefur sést
áferðarfegurri knattspyma að Hlíðarenda
síðan Lolli og félagar hans í Val unnu fs-
landsmeistaratitilinn 10 ár í röð eða svo í
kringum stnðið (heimildum ber ekki
saman hvort um var að ræða fyrri eða
seinni heimstyrjöldina en það er örugg-
lega hægt að flétta því upp í Öldinni
okkar).
Glöggir áhorfendur sáu bregða fyrir
fjölmörgum afbrigðum og stflum í leik
liðsins sem hinir ýmsu þjálfarar Vals
hafa borið með sér í gegnum árin. Festu
og baráttu Ian Ross, sóknarskipulag Yo-
uri Ilitchev, úthald Inga Bjöms Alberts-
sonar og einnar snertingar stíl Róberts
Jónssonar, til að nefna einhverja.
Leikmenn Old boys sýndu afburða
leikskilning og unnu svo vel fyrir hvem
annan að unun var á að horfa. Markmenn
flokksins, Ólafur K. Ólafs og Bjami Sig-
urðsson með hátt í 100 landsleiki á bak-
inu samtals, voru sjálfstraustið uppmálað
og fengu fæst mörk á sig af öllum liðum.
Norðanmaðurinn Haukur Bragason brá
sér í markið sökum kunningsskapar við
„einvaldinn" í forföllum hinna tveggja.
Voru markverðimir kallaðir býflugumar
af andstæðingunum vegna hraða og at-
gangs milli stanganna. Vömin, með unt
200 landsleiki, var kölluð „múrinn“ þar
sem nánast vonlaust var að finna smugu
á henni. Menn eins og Sigtryggur Ámi
Ólafsson, Amaldur Loftsson, Sævar
Jónsson, Þorgrímur Þráinsson, Einar Páll
Tómasson sáu um að liðið fékk á sig fá
mörk. Miðjan var skipuð ekki lakari
mönnum en Jóni S. Helgasyni, Ingvari
Guðmundssyni, Hilmari Sighvatssyni,
Baldri Bragasyni, Steinari
Aðalbjömssyni og á köntunum prýddu
Heimir Jónasson, Flosi Helgason og Sig-
urjón Ragnar. í hinni stórhættulegu sókn,
sem sá um að skora 37 mörk í 9 leikjum,
vom Anthony Karl Gregory, Böðvar
Bergsson, Jón Gunnar Bergs og Kol-
beinn Reginsson. Miðjumaðurinn Jón
Sigurður telur sig hafa átt þátt í nokkrum
markanna og segir hann sjálfur (og
reyndar báðir áhorfendur líka) að hann
hafi skorað fegursta mark sögunnar á
neðra grasvelli Hlíðarenda. What a
bomba!
Þetta var hópurinn sem náði þeim
góða árangri að ná fullu hús stiga á ís-
landsmótinu sumarið 2001 en féll með
óskiljanlegum hætti úr keppni í undanúr-
slitum, 4:5 í framlengdum leik gegn
íslandsmeisturum Fram 1986. Flokkur-
inn mun ekki láta það á sig fá og mæta
tvíelfdur til leiks sumarið 2002 og þá
kemur ekkert annað til greina en að sigra
á íslandsmótinu. Nefndin þakkar leik-
mönnum, mökum, dómurum, stjóminni
og ekki síst áhorfendum fyrir gott sumar
og veittan stuðning.
Afram Valur.
2001 Valsblaðið
93