Valsblaðið - 01.05.2001, Side 98
Ungir Valsarar
DálíflA strangun!
Ánmann Sigurðsson leikmaður 5. flokks í handbolta
Ármann Sigurðsson á góða vini því þeg-
ar hann svaraði spumingum Valsblaðsins
var hann vaktaður af þremur vinum sín-
um í 5. flokki. Og þar sem hann hafði
nýlokið við æfingu var Snorri Steinn,
þjálfarinn hans, að sniglast í kringum
hann. Af þeim sökum var upplagt að
spyrja fyrst hvemig þjálfari Snorri væri.
„Hann er ágætur, “ segir Ármann
glettinn en sex eym sperrast rétt fyrir aft-
an hann. „Hann er reyndar dálítið strang-
ur og er með of margar „suicide" á æf-
ingum.“ Vinir hans kinka kolli.
Þarf ekki að hafa ntikinn aga á
svona kjúklingum eins og ykkur?
„Jú, eflaust er það best. Annars erum við
ljúfir sem lömb fram að miðnætti.“
Ármann er fæddur 7. júní ’88 og er í
8. bekk í Hlíðarskóla. Hann segir að
draumurinn sé að verða atvinnumaður í
handbolta en takist það ekki gæti hann
hugsað sér að verða verkfræðingur. Þeg-
ar Ármann flutti í Hlíðamar voru flestir
vinir hans að æfa fótbolta með Val
þannig að hann skellti sér með. Á sumrin
leikur hann því með 4. flokki en hann er
þess fullviss að hann taki handboltann
fram yfir fótboltann þegar fram líða
stundir. Vinir hans kinka kolli og brosa
langt aftur fyrir eym.
Ármann og hinir stráklingamir urðu í
3. sæti á Reykjavíkurmótinu í handbolta
og í sama sæti á fyrsta íslandsmótinu af
þremur í vetur. Á mótinu urðu þeir í 3.
sæti í deildarkeppninni og fengu 6 stig.
Það lið sem hlýtur flest stig af 3 íslands-
mótum og 2 deildarkeppnum loknum
verður íslandsmeistari. „Já, ég tel okkur
eiga ágætis möguleika, “ segir Ármann
sem leikur á línunni en er þó með meðal-
stórar lúkur. Hann segist helst þurfa að
bæta stökkkraftinn og ná meira öryggi í
skotunum.
Hvaða handboltamenn
eru í uppáhaldi?
„Dagur Sigurðsson og Olafur Stefáns-
son. En í Val núna er það Snorri Steinn."
Ármanni finnst einna eftirminnilegast
þegar hann varð Húsavíkurmeistari sl.
vetur með Val eftir að hafa leikið 5 erfiða
leiki fyrir norðan.
Hvað skiptir mestu máli
ef þú ætlar að ná langt?
„Að hafa einbeitinguna í lagi og æfa vel.“
Hver stofnaði Val og hvenær?
„Það var árið 1906 og einhver prestur
gerði það.“ Núna kom vinskapurinn í
ljós því strákamir bættu við að séra Frið-
rik hefði stofnað Val. En þar sem þeir eru
ekki í viðtali við Valsblaðið, heldur Ár-
mann, verður ekki sagt frá því sem þeir
sögðu, eða hvað? Snorri Steinn þjálfari
trúði ekki sínum eigin eyrum og sagðist
mundu hlýða þeim yfir sögu Vals og
kenna þeim lagið Valsmenn léttir í lund
sem fyrst.
„Einhver þrestur stofnaði Val árið 1906,“ sagði Armann. {Mynd Þ.Þ.)
96
Valsblaðið 2001