Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 70
70
STARFSHæFnI kennARA
sér félagsleg úrræði og samstarf ýmissa aðila, sem taka þátt í skólastarfi, þannig að
þeir geti bæði þegið og gefið í samskiptum við nemendur, aðra nema og reyndari
fagmenn. Mikilvægt er að nýta vel reynslu nema á vettvangi sem grunn fræðilegrar og
hagnýtrar þekkingar. Jafnframt verður að leggja áherslu á faglegan orðaforða í nám-
inu til að kennaranemar geti rætt um erfiðleikana og félagslegt samhengi þeirra. Huga
þarf sérstaklega að stuðningshlutverkinu, þ.e. hlutverki leiðbeinenda á vettvangi og í
kennaraháskólum. Hlutverk kennaramenntunar er að styðja kennaranema í að hefja
sig frá nálægð við eigin persónu og þröngsýni yfir í faglega víðsýni og vinna þannig
gegn einangrun og einsemd í starfi.
Viðamikil endurskoðun á kennaramenntun hefur víða farið fram á síðastliðnum
árum og í tengslum við hana hafa verið gerðar áhugaverðar tilraunir þar sem félags-
legar leiðir eru í brennidepli. Má þar nefna skrif anne Edwards og félaga sem vísað
hefur verið til í grein þessari. í síðari hluta þeirrar norrænu rannsóknar sem fjallað
hefur verið um hér verður prófuð leiðsagnaraðferð sem byggist á ígrundun einstak-
linga í hópi kennaranema og þannig skoðaðar félagslegar námsleiðir. Sömu norrænu
rannsakendurnir standa að því verkefni og þátttakendur verða frá sömu háskólum.
Á undanförnum misserum hefur vettvangsnám í Kennaraháskóla íslands verið
endurskoðað, og áhersla lögð á vettvangsnám sem samstarf Kennaraháskólans og
starfsvettvangs og m.a. tekið mið af félagslegum kenningum (Starfshópur um vett-
vangsnám, 2008). Áhugavert verður að fylgjast með hvernig til tekst.
Kennarastarf í nútímasamfélagi virðist vera svo flókið að það ógnar öryggi þeirra
sem fást við það. Þetta er fylgifiskur kennarastarfsins og kennaranemar verða þess
vegna að læra að lifa með því og læra af því. Kennaranemar þurfa að finna að þeir
standa ekki einir í glímunni við öryggisleysið sem fylgir kennarastarfinu heldur er
það samstarfsverkefni einstaklinga, skóla og samfélags.