Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 80

Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 80
80 Og SeInnA bÖRnIn SegJA: Tafla 1 sýnir jafnframt að íslenskir unglingar 2006 hugðust eignast marktækt færri börn en jafnaldrar þeirra 1992 ráðgerðu að gera. Árið 1992 gerðu stúlkur ráð fyrir því að eignast 2,51 barn að meðaltali og drengir gerðu að meðaltali ráð fyrir 2,32 börnum. Árið 2006 hafði áætluð frjósemi minnkað niður í 2,26 börn að meðaltali meðal stúlkna og 2,13 börn að meðaltali meðal drengja. umræða Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að jafnréttissjónarmiðum vex ekki ásmegin af sjálfsdáðum heldur dregur hver kynslóð dám af því umhverfi sem henni er búið. Rannsóknir á viðhorfum til jafnréttismála víða um heim benda til þess að viðhorf hafi orðið sífellt jákvæðari á undangengnum áratugum. Hver ný kynslóð hefur verið jafn- réttissinnaðri en fyrri kynslóðir (Brooks og Bolzendahl, 2004; Loo og Thorpe, 1998; Zhang, 2006) og sums staðar virðast einstaklingar jafnframt verða jafnréttissinnaðri með aldrinum (Fan og Marini, 2000). Þessi viðhorfsbreyting er nátengd vaxandi jafn- rétti kynjanna á Vesturlöndum og hefur ísland þar verið í fararbroddi (Greig o.fl., 2006). Hins vegar bregður nú svo við að eldri kynslóðir íslendinga virðast jafnréttissinn- aðri en þær sem yngri eru (auður Magndís Leiknisdóttir, 2005) og niðurstöður þess- arar rannsóknar benda til þess að unglingar samtímans hafi talsvert neikvæðari við- horf til jafnréttismála en jafnaldrar þeirra höfðu árið 1992. íslenskir unglingar höfðu árið 2006 mun hefðbundnari viðhorf til verkaskiptingar á heimilum en jafnaldrar þeirra höfðu árið 1992. Þessar breytingar má sjá hjá bæði drengjum og stúlkum en breytingin í átt til hefðbundinna viðhorfa er þó umtalsvert meiri hjá stúlkum. Árið 1992 voru stúlkur mun jafnréttissinnaðri en drengir, en árið 2006 hafði dregið saman með kynjunum að þessu leyti. Orsakir þessara viðhorfsbreytinga eru margþættar og tengjast efnahagslegum, pólitískum og félagslegum breytingum á íslensku samfélagi á undanförnum áratugum. atvinnuþátttaka íslenskra kvenna er með því mesta sem gerist í heiminum og fæst- ir unglingar hafa heimavinnandi mæður sem fyrirmynd. Á Vesturlöndum jókst þátt- taka feðra í heimilisstörfum almennt fram til ársins 1994 en hefur svo að segja staðið í stað síðan (Crompton, Brockmann og Lyonette, 2005). Raunar virðist aukinn jöfn- uður í heimilisstörfum að stórum hluta helgast af því að minna sé gert á heimilum en áður (Bianchi o.fl., 2000; Kitterød og Pettersen, 2006). Konur hafa dregið mikið úr vinnuframlagi sínu á heimili en karlar hafa ekki aukið sitt framlag á móti. Þorgerður Einarsdóttir (2000) hefur bent á að heimilið hafi að einhverju leyti gleymst í jafnrétt- isumræðunni og einkalífið hafi hreinlega verið undanskilið þegar leitað hafi verið að haldbærum skýringum á misrétti kynjanna. Þetta sést glöggt í hneykslun bloggarans Hans Jörgens Hanssonar (2007) yfir því að einhverjir telji húsverk innan veggja heim- ilisins til jafnréttismála. Kvenréttindakonur áttunda áratugarins sáu líklega fyrir sér að aukin atvinnuþátt- taka kvenna myndi sjálfkrafa leiða til aukinnar þátttöku feðra inni á heimilunum og að börn sem fengju að vaxa úr grasi í nýrri fjölskyldugerð myndu drekka í sig
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.