Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 91
91
bÖRkUR HAnSen, ÓlAFUR H. JÓHAnnSSOn, STeInUnn HelgA lÁRUSdÓTTIR
og foreldra í ákvörðunum um skólastarfið. Þessar spurningar eru einkum byggðar á
stefnumarkandi ákvæðum í grunnskólalögunum frá 1995.
að þessu sinni var spurningalistinn í rafrænu formi og var hann sendur á per-
sónuleg netföng allra starfandi skólastjóra í grunnskólum. í bréfi sem með fylgdi var
þeim, sem svo kusu, boðið að fá sendan spurningalista á pappír og þáðu það örfáir.
Spurningalistinn var sendur 172 skólastjórum haustið 2006. alls bárust svör frá 132
og er svarhlutfall því 77%.
niðurstöður
Hér á eftir verður greint frá niðurstöðum könnunarinnar. Fyrst er dregin upp mynd
af samsetningu skólastjórahópsins eftir kyni, aldri og menntun. Jafnframt er rakið
hvernig þessir þættir hafa breyst á síðustu áratugum. í öðru lagi er fjallað um röðun
mikilvægra verkefna eftir því hversu miklum tíma skólastjórar verja til þeirra og
hversu miklum tíma þeir vildu verja til þeirra. Slíkra upplýsinga var aflað í öllum
könnununum, þ.e. 2006, 2001 og 1991, og því er unnt að draga upp mynd af breyting-
um á störfum þeirra á þessu tímabili. í þriðja lagi er greint frá mati skólastjóra á því
hvaða áhrif tilkoma deildarstjóra hefur haft á störf þeirra og um mat skólastjóra á hlut-
deild kennara í ákvörðunum. að lokum greinir frá því hversu mikil áhrif skólastjórar
telja að foreldrar hafi á tiltekna þætti í starfsemi grunnskóla.
Samsetning hópsins – aldur og kyn
í töflu 1 er að finna upplýsingar um samsetningu skólastjórahópsins sem svaraði
spurningalistunum, þ.e. hvernig hann flokkast eftir kyni, aldri og menntun árin 2006,
2001 og 1991.
Tafla 1 – Skólastjórar sem svöruðu spurningalistum árin 2006, 2001 og 1991, flokkaðir
eftir kyni, aldri og menntun.
Ár Kyn (%) Aldur (%) Menntun (%)
Karlar Konur 20–39 40–49 50-59 60– Kí B.Ed. Stj.nám
2006 58 42 12 31 47 10 30 52 58
2001 67 33 14 38 41 7 47 35 25
1991 72 28 26 44 24 7 54 23 -
athygli vekur að hlutfall karla og kvenna í stöðum skólastjóra er jafnara en áður var.
Hlutfall karlkyns skólastjóra á árinu 2006 er t.d. 58% og kvenkyns skólastjóra 42%.
Árið 1991 er þetta hlutfall mun ójafnara eða 72% karlar og 28% konur. aldursdreif-
ing skólastjórahópsins er einnig að breytast og virðist sem meðalaldur þeirra fari
hækkandi. Árið 2006 er hlutfall þeirra sem eru yfir fimmtugu 57% en er 31% árið
1991. Árið 2006 eru 43% skólastjóra á aldrinum 20−49 ára en 70% árið 1991. Þá hef-
ur menntun hópsins breyst talsvert, og eru 58% skólastjóra árið 2006 með einhvers
konar framhaldsnám í stjórnun en það er aukning um 33% frá því árið 2001. Loks fer
þeim fjölgandi sem eru með B.Ed.-gráðu, árið 2006 eru þeir 52% en 23% árið 1991.