Morgunn - 01.06.1942, Qupperneq 34
28
M O R G U N N
SANNANIR AF ENDURMINNINGUM.
Þá kem ég loks að þeim sönnununum, sem áreiðan--
lega haia sannfært lang flesta menn um framhaldstil-
veruna, en það er endurminningar látinna manrta fré.
jarðlífi þeirra, sem stjórnandi miðilsins kemur ýmist
fram með fyrir þeirra hönd, meðan miðillinn liggur
sjálfur meðvitundarlaus í transinum, eða hinir fram-
liðnu korna sjálfir með í gegn um miðilinn, sé þeim það
unnt. Hinar svo nefndu ,,sjálfstæðu“ raddir, sem eru í
því fólgnar, að hinir framliðnu tala utan við miðilinn
og nota ekki raddbönd hans eða tungu, er vitanlega
miklu fuilkomnari aðferð. Hjá íslenzkum miðlum mun
þess fyrirbrigðis ekki hafa orðið verulega vart, nema hjá
Indriða Indriðasyni. Hjá beztu erlendu miðlum hafa
þessar raddir talað, meðan miðillinn er sjálfur vakandi
og talar við fundargesti.
Slíkar endurminningasannanir hefir mikill fjöldi
manna um víða veröld fengið hjá miðlum, þar sem eng-
in önnur skýring var möguleg en sú, að þar væri hinir
framliðnu menn sjálfir að verki með ljóslifandi endur-
minningar sínar frá jarðlífinu.
Þess háttar sannanir hafa margar fengizt hjá íslenzk-
um miðlum og vart verður annað séð en,að um slíka
sönnun sé að ræða í erindi því, sem hr. Ásmundur Gests-
son birtir á öðrum staðíþessu riti, en vegna enn þá miklu
víðtækara sönnunargildis ætla ég að tilfæra hér frásögn
eins af ágætustu sálarrannsóknarmönnum, sem nú eru
uppi og áður er getið í þessari ritgerð, en það er Lindsay
Johnson.
Hann hafði verið að gera tilraunir með sálrænar Ijós-
myndir, þar sem honum hafði m. a. heppnazt að fá
ákaflega skýra mynd af róg á ljósmyndaplötu, sem
aldrei var sett í myndavél en miðillinn hafði að eins
handleikið í lokuðum pakka með mörgum öðrum plöt-
um, og haldið andartaksstund upp að enni sínu. Fjórum
dögum síðar fór hann á fund annars miðils, sem hann