Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 44
38
MORGUNN
Fundur hjá Hafsteini Björnssyni miðli, 25. jan. 1941.
Það skal strax tekið fram, að ég var sjálfur ekki við-
staddur fund þann, er hér um ræðir.
Tildrög fundarins voru þau, að til Reykjavíkur kemur
maður, Hjálmar J. Guðjónsson að nafni, frá Strandhöfn
í Vopnafirði.
Fyrir tilmæli Hjálmars við frú Guðrúnu Jónsdóttur,
Vesturgötu 48, Reykjavík, gekkst hún fyrir því, að
fundur var haldinn fyrir Hjálmar, hjá miðlinum Haf-
steini Björnssyni. Fundinn sátu þau þrjú, auk miðilsins,
frú Guðrún og Hjálmar, ásamt frú Hansínu Hansdóttur.
Að kvöldi þess 27. janúar bar svo við, að frú Guðrún
kom, af tilviljun, hcim til mín og meðal annars barst í
tal, okkar í milli, að hún hefði nýlega verið á miðils-
íundi, sem virtist að henni, fyrst frarnan af, hefði fund-
ist að fremur lítið yrði á að græða, hvað sannanir snerti,
þrátt fyrir góðan miðilskraft, einkum fyrir þá sök, að
einhver framliðinn maður hefði gert þar vart við sig
og tekið upp mikinn hluta fundartímans, en sem enginn
þeirra gat kannazt við. Hafði hann sérstaklega viljað
gefa sig að Hjálmari, sem átti fundinn, þar sem hann
kostaði til híms. Gat Hjálmar alls ekki kannazt við ,,gest
inn“ og mun honum hafa þótt nóg um áfergi hans. Enda
er slíkt afsakanlegt og mjög skiljanlegt, að Hjálmari
hefði verið kærkomnara að fá samband við einhvern, er
hann bæri kennsl á. Þegar svo frú Guðrún sagði mér,
að maður þessi, hefði sagt sig mjög hafa verið bundinn
við Eskif jörð og dáið þar o.s.frv. kom mér í hug, að þarna
gæti ég, ef til vildi, gerst þarfur milliliður, með því að
skrifa læknishjónunum þar. Síðan sendi ég þeim því
bréf stílað til frænku minnar, konu læknisins á Eski-
firði, með nokkrum eftirgrennslunum, er mér þóttu bezt
henta og til urðu við þær upplýsingar, er frú Guðrún
gaf mér um þennan ókunna fundargest. Efni bréfs míns,
að þessu leyti, var ekkí víðtækt, aðeins það, hvort lækn-