Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 21
M O R G U N N
15
Vinkona mín ein í Reykjavík, sem látin er fyrir nokk-
urum árum og var orðlögð fyrir mannkosti og grand-
varleik, sagði mér frá því, er hún var stödd hjá vinkonu
sinni, þjóðkunnri konu, og var hjá þeim stúlka, sem
var að skrifa ósjálfrátt. Skyndilega var skrifað nafn
manns nokkurs, sem þær þekktu og bjó úti á landi, og
um leið var skrifað: „Hann var að koma til okkar rétt
í þessu“. Frá dauðaorsök mannsins, sem bæði var hörmu-
log og óvænt með öllu, var sagt. Konurnar vissu ekki
annað en maðurinn væri á lífi og við fulla heilsu og
þorðu ekki að hafa orð á þessu við nokkurn mann. En
daginn eftir var birt fregnin um vofeiflegt andlát manns-
ins og mun hún ekki hafa verið komin til ættingja hans
í Reykjavík, þegar hún kom fram hjá miðlinum.
Frá svipuðum dæmum með ósjálfráðri skrift og svo
nefndu ,,Oujaborði“, segir hinn frægi, brezki augn-
læknir og sálarrannsóknamaður, Lindsay Johnson. Hjá
vinum hans kom þannig orðsending um, að maður, sem
þau vissu engin deili á, vissu ekki einu sinni að væri til,
hafði farizt af bílslysi. Var hvorttveggja tilgreint, stað-
ur og stund, og ennfremur skrifað nafn föður unga
mannsins og heimilisfang hans. Fólkið skrifaði síðan
þessum ókunna föður, með þessu ókunna heimilisfangi,
og allt reyndist vera nákvæmlega rétt. Með hverjum
hætti geta andstæðingar spiritismans skýrt þetta?
Læknirinn segir enn fremur frá því, að hjá sama
fólki hefði skrifazt nafn hermanns, sem þá var nýfallinn
á belgísku vígstöðvunum og það hafði heldur enga hug-
mynd um. Ungi maðurinn gaf síðan upp í sambandinu
nafn og heimilsfang föður síns og sagði enn fremur frá
því, að á tilteknum stað hefði hann geymt gull-nisti,
sem hann hafi ætlað unnustu sinni, en ekki getað kom-
ið því til hennar vegna þess, að hann hefði verið kallaður
svo skjótlega til herþjónustunnar. Hjónin skrifuðu nú
samkvæmt þessu heimilisfangi, sem þeim var allsendis
ókunnugt áður, og þau fengu bráðlega svar. Allt var