Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 52
46
M O R G U N N
Hjálmars og komi til hans, þar sem þeir séu báðir úr
sama landshluta. Hann var vanur að vinna að vegagerð
uppi á Héraði (Fljótsdalshéraði) og hefir máske kynnst
þar ginhverju af fólki Hjálmars, um það veit ég ekki,
en ekki er það ólíklegt, það gat líka verið án Hjálmars
vitundar. — Hann segir nafn sitt og föðurnafn. Að hann
eigi foreldra á lífi. Að hann hafi verið bílstjórj og farið
yfir fjallveg, verið einn í bílnum sínum yfir fjallveg.
1 bréfi læknisfrúarinnar segir, að hann, um morguninn,
hafi farið einn á bilnum sínum til Viðfjarðar. Ég veit
að þar er erfiðan fjallveg yfir að fara. Að eitthvað hafi
verið að bílnum. Að hann hafi skriðið undir bílinn og
að þá hafi eitthvað slitnað innan í sér. Að hann dó ekki
strax en komst heim til sín. Að hann hafi verið fluttur
á bát milli fjarða og dáið á leiðinni í bátnum. Hann
r.efnir Reyðarfjörð og Eskifjörð, en Eskifjörður virðist
þó ofar í huga hans. Eklci að furða, síðast fór hann frá
Reyðarfirði, en á Eskifirði eru foreldrar hans og hjá
þeim á hann heima. — Stjórn/andi miðilsins er spurður,
hvað langt mundi síðan að dauða hans bar að; hann
segist ekki sjá það glöggt, gizkar þó á 4—5 mánuði; en
geti þó munað einhverju. Maðurinn deyr 28. sept 1940,
c-n eins og áður getur, var fundurinn hjá Hafsteipi
Björnssyni þann 25. janúar 1941. Þá eru liðnir allt að
því 4 mánuðir frá andláti hans, eða nánara 3 mánuðir og
27 da^ar.
Þegar öll þessi atriði, er hér um ræðir, eru borin sam-
an við skyrslu læknisfrúarinnar og aðrar upplýsingar,
er ég komst yfir, verður ekki annað sagt en lað hér liggi
fyrir alveg óvéfengjanlegar sannanir hins framliðna
manns. Eða hvernig ætti, með skynsamlegum rökum, að
vera mögulegt að tengja hér við áhrif undirvitundar,
fjarskynjunar, hugsanaflutnings eða huglesturs. —
Flestir verða að leiða hesta sína frá slíku. Ég tel það
alveg útilokað. Eða hvaðan og hvernig ætti t. d. miðlin-