Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 69
MORGUNN
6£
sem reis út af hinum frægu þumalfingurmótum, sem tal-
ið var, eftir gömlum fingurmótum, sem fundust á rak-
hnífi, er Walter hafði fyrir löngu átt, að væri raunveru-
lega fingurmót hans. Ekkert þessu líkt hafði áður verið
feynt í sögu sálarrannsóknanna, að fá fingurmót fram-
liðins manns í vax og sanna nærveru hans með því að
bera þau saman við fingurmót hans, sem til voru frá
lifanda lífi. En eins og kunnugt er, telja vísindamenn,
að fingux,,mót engra tveggja manna geti verið nákvæm-
lega eins. Þetta var nú gert á fundum með ,,Margery“
svo hundruðum skipti og fingurmótin náðust með marg-
víslegu móti. Sérfræðingar lýstu yfir því, að fingui’mótin
væri fullkomin, en aðrir þóttust finna á þeim galla, eða
sögðu, að þetta sannaði ekkert, fingurmótin gætu verið
búin til eftir fyrirmyndum, sem til hefðu verið, og þvf
sönnuðu þau ekkert, og gáfu í skyn,, að hér væri brögð
í tafli. Nú eru vitanlega til staðfestar frásagnir um fjöl-
marga líkamninga, sem hefir þekkzt að voru fi'amliðnir
menn, og líkamninganiir þekktust stundum af líkams-
lýtum, eða líkamseinkennum, sem þeir báru í lifanda
lífi. Það virtist þá ekki þurfa að vera svo miklu ei’fið-
ai1a, að fá líkamaðan þumalfingur, sem gæti skilið eftir
mót af sér í vaxi, í sönnunarskyni, einkum þar sem það
hafði marg sinnis tekizt á fundunum hjá ,,Margery“, að
taka ljósmyndir af teleplasmanu, sem streymdi út frá
henni í transinum, og hafði m.a. tekið á sig handarlögun.
Þegar deilurnar risu um þumalfingurmót ,Walters‘, urðu
Crandons-hjónin fyrir þeiri'i í’aun, að hr. Dudley, sem
lengi hafði unnið með þeim í tilraunahringnum, snerist
til mótstöðu við þau. Nokkra uppbót fyrir það fengu þau,
begar hr. Thorogood, var af Ameríska Sálarrannsókna-
félaginu skipaður verjandi þeii’ra og gerðist ákveðinn
talsmaður frú Crandon. Fleiri fingurmót fengust frá
framliðnum mönnum, eins og t. d. Hill dómara, sem áð-
ur hafði verið samstarfsmaður við tilraunimar, en þau
fingurmót voru einnig vefengd.