Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 114
108
M O R G U N N
írásögn af ljósmyndum, sem hann fékk í Crew árið 1930
og fer hér á eftir frásögn hans, nokkuð stytt:
,,Um nokkurra ára skeið höfðu andavinir mínir lagt
fast að mér, að fá af mér mynd hjá ljósmyndamiðli.
En af ýmsum ástæðum hafði ég látið þessa ósk þeirra
undir höfuð leggjast, og ég hafði einhvern veginn enga
tilhneiging í þá áttina að reyna þetta. Þá urðu kynleg
atvik til þess að sýna mér, að þeir hinum megin höfðu
ekki gefizt upp.
í júní 1930 ferðaðist ég um Skotland til Mallaig og í
september mánuði sama árs ætlaði ég að fara í eins
konar í pílagrímsför til Ayrshire í Skotlandi, sem kem-
ur mjög við sögu Roberts Burns, til þess að búa mig
undir fyrirlestur um líf hans og starf, sem ég ætl-
aði að flytja jafnhliða því, að ég ætlaði að lesa upp úr
Ijóðum hans.
Ég var kominn til London úr fyrri ferðinni en ekki
farinn í hina síðari, þegar ég fór, í júlí, á almenna sam-
komu, sem spiritistasamband Lundúna hélt, þar sem
miðillinn Glover Botham átti að gefa opinberar skyggni-
lýsingar. Miðillinn beindi orðum sínum til mín og sagði:
,,Þér hafið nú þegar verið í Skotlandi einu sinni í ár,
en andaverurnar segja mér, að þér munuð fara þangað
aftur og að í þetta sinn muni leiðin liggja fram hjá
Crew, og þær segja: f þetta sinn átt þú að nema þar
staðar og láta taka mynd af þér“!
Þetta var rétt. f þetta sinn átti leið mín að liggja fram
hjá Crew. Og þegar mér varð ljóst, hversu andavinir
mínir fylgdust nákvæmlega með ferðum mínum og fyr-
irætlunum, fannst mér ég ekki geta komizt hjá því, að
!áta að óskum þeirra með því að fara til Crew. Þess
vegna lét ég Brezku Sálvísinda^tofnunina í London koma
mér í samband við Mr. Hope og það varð að samkomu-
lagi okkar í milli, að ég kæmi til hans til myndatöku 1.
september.
Mr. Hope bað um, að ég kæmi með mínar eigin