Morgunn - 01.06.1942, Side 88
82
M O R G U N N
ast ekki við, að hann ætti þessi börn. Fáum dögum síðar
kom hann aftur til mín og kom nú með konu sínia, sem
hann hafði bersýnilega sagt frá þessu. Frúin sagði mér
nú, að hún ætti þessi börn, og að bæði hefðu þau fæðst
ófullburða og andazt í fæðingunni. Ef þau hefðu lifað,
væru þau nú á þeim aldri, sem ég hafði nefnt. Hún sagði
mér ennfremur, að áður en eldra barnið hefði fæðzt,
hefðu hjónin verið búin að koma sér saman um, að ef
það yrði stúlka, skyldi hún heita Alice. Þegar síðara
barnið hefði fæðzt, hefði ekkert verið ákveðið um nafn
á því.
Ég skil ekki að börnin hefðu getað komið betri sönnun
til foreldranna, sem voru búin að gleyma þeim.“
J. A.
Þróun og undirvitund.
Þúsundir manna um víða veröld telja sig hafa hlotið
ótvíræðar sannanir fyrir framhaldslífi látinna vina og
og vandamanna. Margir þeirra hafa gert mjög ítarlega
grein fyrir því, hvað orðið hafi til að sannfæra þá um
þetta. Með réttu verður ekki sagt, að rök þessara manna
séu úr lausu lofti gripin. Þeir eru þó margir, sem vé-
fengja mjög þessar niðurstöðuáiyktanir. Þeir halda því
fram, að ekkert af sannanagögnum þeim, sem fram hafa
verið lögð ályktunum þessum til stuðnings, sanni af-
dráttarlaust, að framliðnir menn hafi verið eða séu þar
að verki. Allt það, sem spíritistar hyggja að stafi frá
framliðnum mönnum, telja þessir menn að megi skýra
út frá meir eður minna dulinni starfsemi vitundarlífsins.
Það skal látið liggja milli hluta nú, hvort nokkur fram-
liðinn maður muni hafa fært sönnur fyrir framhalds-
lífi sínu eftir andlátið. Vér skulum í þess stað íhuga